Læknar hafna hugmyndum um sáttanefnd Höskuldur Kári Schram skrifar 15. desember 2014 19:05
Formaður samninganefndar Læknafélags Íslands hafnar hugmyndum forystumanna stjórnarandstöðunnar um að skipa sérstaka sáttanefnd í deilunni. Hugmyndir þessa efnis hafa einnig verið ræddar í ríkisstjórn og heilbrigðisráðherra segir slíkt koma til greina ef deilan leysist ekki á næstu vikum. Í sameiginlegri yfirlýsingu sem forystumenn stjórnarandstöðunnar sendu frá sér í gær er lagt til að ríkisstjórnin skipi sérstaka sáttanefnd til að vinna að lausn læknadeilunnar en viðræður hafa hingað til ekki skilað neinum árangri. Sáttanefndin yrði skipuð í samráði við deiluaðila og gert að koma með tillögur til lausnar deilunni. „Við leggjum þetta til af því deilan er komin í harðan hnút. Við sjáum að afleiðingarnar geta orðið mjög alvarlegar. Bæði fyrir heilbrigðisþjónustuna og þar með fyrir allan almenning í landinu. Það er heimildarákvæði í lögum um að ríkisstjórnin geti skipað sáttanefnd í vinnudeilum sem eru komnar í mjög harðan hnút og hafa svona víðtæk áhrif. Þannig að þetta er auðvitað inngrip en við höfum áhyggjur af því að það gangi hvorki né reki, " segir Katrín Jakobsdóttir formaður VG. Sigurveig Pétursdóttir, formaður samninganefndar Læknafélags Íslands hafnar hins vegar þessari hugmynd. „Ég sé ekki alveg að sáttanefnd geti komið með þá tölulegu hækkun sem að þarf til að læknar samþykki hana," segir Sigurveig. Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra, segir að þessi leið hafi verið rædd í ríkisstjórn og við deiluaðila í síðustu viku en hann telur þó rétt að gefa samninganefndum frekari tíma til að ná sátt. „Í mínum huga er algjörlega ljóst að það verður að leggja töluvert á sig til að forða því að það verkfall sem boðað er í upphafi næsta árs skelli á. Það er ástand sem ég tel ekki forsvaranlegt að gangi yfir Íslendinga,“ segir Kristján Þór.Hversu mikinn tíma fá deiluaðilar?„Eigum við ekki að sjá hvernig miðar í þessari viku,“ segir Kristján Þór.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Fleiri fréttir Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Sjá meira