Fjárlagafrumvarp verður að lögum Heimir Már Pétursson skrifar 16. desember 2014 19:50
Alþingi lýkur störfum fyrir jólaleyfi í kvöld með samþykkt fjárlagafrumvarps næsta árs án þess að stjórnarandstaðan næði fram mikilum breytingum þrátt fyrir langar umræður um frumvarpið. Stjórnarandstaðan segir ríkisstjórnina valda óvissu hjá starfsfólki fjölda stofnana og sýna menningarstarfsemi lítinn skilning. Á síðustu metrunum fyrir fyrir jólaleyfi ítrekuðu þingmenn stjórnarandstöðunnar áhyggjur sínar af ýmsum ráðstöfunum í fjárlagafrumvarpinu, meðal annars varðandi Ríkisútvarpið, vinnumarkaðinn og fleira. Þá lifði starfsfólk ýmissa ríkisstofnana við mikla óvissu þessa daga vegna ákvarðana sem teknar hefðu verið að gefið í skyn að lægju í loftinu. Stjórnarþingmenn höfðu hins vegar margir fengið sig fullsadda af fjárlagaumræðunni. „Á síðasta þingi gerði ég mér far um það að hringja í félaga mína í Sjálfstæðisflokknum og skamma þá fyrir málþóf sem mér finnst niðurlægjandi fyrir þennan vinnustað. Og ég fordæmi það málþóf sem hér hefur farið fram, síðast í gærkvöldi. Þetta er lítillækkun á þessum vinnustað og til háborinnar skammar fyrir okkur sem erum að vinna fyrir land og þjóð,“ sagði Ásmundur Einarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem kosinn var til þings í síðustu kosningum. „Já, herra forseti, það á ekki af okkur að ganga undir þessari ríkisstjórn. Ég held svei mér þá að veðrið hafi ekki verið svona skítlegt í jólamánuðinum síðan á dögum Viðreisnar,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon þingmaður Vinstri grænna. Þótt eflaust sé erfitt að kenna ríkisstjórninni eða fjárlagafrumvarpinu um óveðurstíðina að undanförnu. Steingrímur ræddi annars menningarpólitík ríkisstjórnarinnar og viðhorf hennar til fjölmiðla. Framlög til menningarmála væri skorin við trog og virðisaukaskattur hækkaður á bækur og menningartengda starfsemi. „En öllu alvarlegra er þó það viðhorf sem birtist í stanslausum árásum á fjölmiðla og fjölmiðlamenn. Þar sem þeir eru hundeltir fyrir það að segja fréttir. Sérstaklega ef það eru fréttir af ríkisstjórninni og sérstakur almannatengill á launum frá almenningi vinnur við það í stjórnarráðinu að stýra umfjöllun fjölmiðla um forsætisráðherrann og ríkisstjórnina,“ sagði Steingrímur. Birgitta Jónsdóttir sagði málþóf ekki þurfa að vera neikvætt. „Í mínum huga er málþóf í sjálfu sér ekkert neikvætt fyrirbæri. Málþóf þjóna ákveðnum tilgangi og eru oft eina verkfærið sem minnihlutinn hefur til að skapa umræðu um mál sem eru illa unnin eða hreinlega háskaleg. Þannig að við skulum ekki tala niður þetta verkfæri minnihlutans,“ segir Birgitta Jónsdóttir.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Innlent Fleiri fréttir Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Sjá meira