Það helliringdi inni í Silfurbergi Heimir Már Pétursson skrifar 16. desember 2014 20:02
Það helliringdi inni í öðrum stærsta sal Hörpu þegar forstjóri hússins kom þangað í nótt eftir að leki kom á loftræstikerfi húsins. Forstjórinn vonar að skemmdir vegna lekans reynist minni en útlit var fyrir í fyrstu. Viðvörunarkerfi vegna leka fór í gang í Hörpu upp úr klukkan þrjú í nótt og kom slökkvilið fljótlega á staðinn og hófst handa við að stöðva lekann. Þegar fréttastofu bar að garði í Hörpu síðdegis í dag voru menn í óðaönn að þurrka Silfurberg eftir atburði næturinnar. En útlitið var ekki gott þegar forstjórinn kom í húsið að verða klukkan fjögur í nótt. „Okkur leist nú ekki mjög vel á að koma hérna í nótt. Það hafði farið element í loftræstiherbergi sem beint fyrir ofan Silfurberg. Þannig að það fossringdi hér inni í salnum og við vissum heldur ekki hvert vatnið hafði farið eða hvernig það hafði dreift sér. Svo getum við sagt að það hafi farið betur en á horfðist,“ sagði Halldór Guðmundsson forstjóri Hörpu síðdegis. Slökkviliðið hafi mætt og þurrkað upp vatnið af miklu kappi og þurrkarar hafa verið í gangi í salnum í allan dag. Ef ekki hefði verið vegna veðursins í Reykjavík í dag hefðu fyrirhugaðir tónleikar getað farið fram í Silfurbergi í kvöld.En það er nú kannski ekki besta útsýnið sem forstjóri svona húss fær þegar hann kemur inn í þennan annan stærsta sal Hörpu? „Nei, okkur leist auðvitað ekkert á blikuna því þetta eru gríðarleg loftræstikerfi og þegar element gefur sig í því getur það haft alvarlegar afleiðingar. Þannig að nú erum við að fara yfir það með okkar tæknimönnum hvað nákvæmlega gerðist og hvernig hægt er að koma í veg fyrir að það gerist aftur,“ segir Halldór. Enn eigi eftir að meta endanlegt tjón með fulltrúum tryggingarfélaga en hins vegar sé útlit fyrir að það verði minna en talið var fyrir í fyrstu. „En auðvitað þarf kannski einhverja daga til að það komi alveg í ljós hvað hefur gerst. En okkur sýnist að það sé búið að komast fyrir þetta og við séum eiginlega bara að þurrka og gera klárt. Því það er mikið um að vera hér í húsinu í desember,“ segir Halldór Guðmundsson.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Fleiri fréttir Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Sjá meira