Verklag endurskoðað hjá Vegagerðinni Bjarki Ármannsson skrifar 16. desember 2014 21:09 Vegamálastjóri segir ferli þegar hafið til að áminna starfsmann Vegagerðarinnar fyrir vafasama viðskiptahætti. Vísir/Ernir
Hreinn Haraldsson vegamálastjóri segir ferli þegar hafið innan Vegagerðarinnar sem miðar að því að endurskoða verklag í kjölfar umfjöllunar um vafasöm viðskipti ýmissa starfsmanna við vini og skyldmenni. „Við erum að fara yfir allt málið,“ segir Hreinn í samtali við Vísi. „Það er hópur sem er farinn að vinna í því og síðan koma menn með nýjar verklagsreglur og skýra hvernig á að standa að hlutunum þegar menn finna dæmi sem ekki hafa verið í lagi.“ Nokkur slík dæmi voru tíunduð í þætti Kastljóss á RÚV í kvöld, þar sem Hreinn var til viðtals. Þar kom meðal annars fram að útibússtjóri Vegagerðarinnar í Hafnarfirði samdi við fyrirtæki í eigin eigu um ræstingar útibúsins. Samkvæmt því sem kom fram í þættinum er áminningarferli hafið yfir starfsmanninum. „Það eru ákveðin lög sem gilda um áminningar, það þarf að gefa mönnum andmælarétt og andmælafrest og svo framvegis,“ útskýrir Hreinn. „Það tekur einhverja daga að koma slíku á.“ Hreinn segir það ferli klárast á næstu dögum, en það endi sjaldan með brottrekstri. Einnig var greint frá því í kvöld að ítrekað hefur verið samið við fyrirtæki fyrrverandi starfsmanns Vegagerðarinnar og bróður deildastjóra Vegagerðarinnar. Hreinn segist lítið vilja tjá sig um þessi einstöku mál við Vísi, en hann missti af þætti Kastljóss er hann var úti að moka snjó. „Ég held að það hafi komið ágætlega fram í þessu viðtali að mér finnst þetta alvarlegt og það er strax búið að grípa til ákveðinna ráðstafanna og komið í gang ferli til að vinna úr því,“ segir Hreinn.
Tengdar fréttir Vafasöm viðskipti Vegagerðarinnar Dæmi eru um að starfsmenn hafi gert samninga, sem samtals nema á sjöunda hundrað milljónir króna, við ættingja, maka og jafnvel sig sjálfa. 16. desember 2014 20:00 Mest lesið Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Erlent Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi Innlent Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Innlent Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Innlent Stofna sérstakan dómstól vegna árásarglæpa Rússa Erlent Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Innlent Búast má við töluverðum dembum Veður Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Innlent Fleiri fréttir Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Sjá meira
Vafasöm viðskipti Vegagerðarinnar Dæmi eru um að starfsmenn hafi gert samninga, sem samtals nema á sjöunda hundrað milljónir króna, við ættingja, maka og jafnvel sig sjálfa. 16. desember 2014 20:00