Mikil aukning í fyrirspurnum til ráðherra Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 17. desember 2014 17:53 Á síðasta kjörtímabili voru lagðar fram 513 fyrirspurnir til skriflegs svars. Vísir/GVA
Þegar Alþingi var frestað í gær og þingmenn fóru í jólafrí gerði Einar K. Guðfinnsson, forseti þingsins, fjölgun fyrirspurna þar sem óskað er eftir skriflegum svörum ráðherra að sérstöku umtalsefni. Í máli Einars kom fram að 215 fyrirspurnir voru lagðar fram á haustþingi og sagði hann að ef svipaður fjöldi yrði lagður fram á þeim tveimur önnum sem eftir eru af yfirstandandi þingi, yrðu þær fleiri en fjöldi fyrirspurna til skriflegs svars á öllu seinasta kjörtímabili. Einar sagði að þá hefðu verið lagðar fram alls 513 fyrirspurnir en kjörtímabilið 2003-2007 voru þær 403. Að sama skapi hefur fyrirspurnum til munnlegs svars fækkað en Einar sagði að það mætti að einhverju leyti rekja til breytingar á þingsköpum sem gerð voru í árslok 2007. Þá var óundirbúnum fyrirspurnatíma til ráðherra fjölgað og eru þeir nú tvisvar í viku. Einar sagði erfitt að skýra með fullnægjandi hætti þessa miklu fjölgun í fyrirspurnum til skriflegs svars sem varð á haustþinginu. Í máli hans kom fram að hann teldi það þó ekki æskilega þróun „ef hefðbundnar fyrirspurnir eiga eftir að þróast í þá átt að verða fyrst og fremst í því formi að ráðherrar leggi fram skrifleg svör.“ Að mati þingforseta felst gildi fyrirspurna ekki síst í því að þær geta boðið upp á snörp og markviss skoðanaskipti á milli ráðherra og þingmanna og benti hann á eftirfarandi í því samhengi: „Til þess að slík skoðanaskipti um málefni líðandi stundar geti átt sér stað er líka nauðsynlegt að fyrirspurn til munnlegs svars taki mið af ákvæðum þingskapa, en þar segir að fyrirspurn eigi að vera skýr, um afmörkuð atriði og við það miðað að hægt sé að svara henni í stuttu máli.“ Að lokum sagði að Einar að þrátt fyrir þessa miklu fjölgun fyrirspurna þá hefði svarhlutfall ekki minnkað heldur hefði það þver á móti batnað.
Mest lesið Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Innlent Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Stofna sérstakan dómstól vegna árásarglæpa Rússa Erlent Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Innlent Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Erlent Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Kristrún missti af fundi með Selenskí Erlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Fleiri fréttir Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Sjá meira