ESB verði að slá af kröfum um aukin framlög Atli Ísleifsson skrifar 17. desember 2014 20:20 Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra átti fund með Laurent Fabius, utanríkisráðherra Frakklands, í París fyrr í dag. Mynd/Utanríkisráðuneytið
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra átti fund með Laurent Fabius, utanríkisráðherra Frakklands í París fyrr í dag þar sem þeir ræddu meðal annars yfirstandandi samningaviðræður um uppbyggingarsjóð EES. Gunnar Bragi sagði að Evrópusambandið yrði að slá af kröfum sínum um aukin framlög til sjóðsins. Gunnar Bragi og Fabius ræddu á fundi sínum um tengsl ríkjanna á sviði menningarmála. viðskipta og ferðamennsku, fjölluðu um þróun á norðurslóðum, loftslagsmál, nýtingu jarðhita, samstarf á sviði öryggis- og varnarmála, auk þess að ræða þróun mála í Úkraínu og Mið-Austurlöndum. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að Gunnar Bragi segi ánægjulegt að finna þann hlýhug sem ríkir í garð Íslands í Frakklandi og þann áhuga sem franskur almenningur sýni Íslandi og íslenskri menningu. „Franskir ferðamenn flykkjast til Íslands, íslenskar bókmenntir seljast sem aldrei fyrr í Frakklandi og þá þarf vart að nefna mikilvægi Frakklands fyrir íslenskan sjávarútveg. Við viljum hlúa að samskiptum ríkjanna, treysta böndin enn frekar og leita nýrra sóknarfæra,“ segir Gunnar Bragi. „Ráðherrarnir ræddu niðurstöðu ríkjaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál sem er nýlokið í Perú. Utanríkisráðherra Frakklands mun leiða næstu ríkjaráðstefnu sem haldin verður í París að ári liðnu þar hann stýrir viðræðum um nýtt alþjóðlegt samkomulag í loftslagsmálum sem mun gilda frá árinu 2020. Ráðherrarnir ræddu meðal annars samstarfsmöguleika Íslands og Frakklands á sviði jarðhitanýtingar sem mikilvægt innlegg í aðgerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.“ Í tilkynningunni segir að frönsk stjórnvöld hafi í vaxandi mæli sett málefni norðurslóða á oddinn og er gert ráð fyrir að vegvísir um áherslur í norðurslóðastarfi Frakklands verði kynntur á næsta ári. „Gunnar Bragi segir framlag Frakklands til rannsókna og vísinda á norðurslóðum, meðal annars í samstarfi við íslenskar fræðistofnanir, vera mikils metið. Þá hafi Frakkar vilja til að tengjast enn frekar störfum Norðurskautsráðsins enda hafi ráðið styrkst mjög á umliðnum árum, meðal annars með gerð lagalega bindandi samninga um brýn hagsmunamál. Gunnar Bragi og Fabius ræddu stöðu mála í Úkraínu, Mið-Austurlöndum, samningaviðræður um kjarnorkuáætlun Írans og málefni Palestínu. Þeir ræddu ennfremur yfirstandandi samningaviðræður um uppbyggingarsjóð EES. Gunnar Bragi sagði Evrópusambandið verða að slá af kröfum sínum um aukin framlög til sjóðsins. Þá fjölluðu ráðherrarnir um samstarf Íslands og Frakklands í öryggis- og varnarmálum en Frakkar voru fyrsta bandalagsríki Atlantshafsbandalagsins sem tók þátt í loftrýmisgæslu á Íslandi árið 2008. Gunnar Bragi ræddi þau verkefni og skyldur sem íslensk stjórnvöld hafa tekist á hendur á undanförnum árum, meðal annars rekstur og viðhald ratsjárkerfisins, stjórnstöðvarinnar á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og annarra varnarmannvirkja og -búnaðar.“
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Fleiri fréttir Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Sjá meira