„Það fór bara allur snjórinn úr Hlíðarfjalli og fauk hingað niður í bæ“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 18. desember 2014 11:15 Gríðarlega mikill snjór var í Naustahverfi í gær og voru þessar myndir teknar um klukkan 17 þegar hverfið var opnað eftir að hafa verið lokað vegna ófærðar. Vísir „
Já, þetta var alveg svakalegt, við köllum nú ekki allt ömmu okkar hérna en mokstursmennirnir urðu bara sjálfir innlyksa,“ segir Engilbert Ingvarsson, snjómokstursmaður á Akureyri, en loka þurfti Naustahverfi í nokkra klukkutíma í gær þar sem snjómokstursmenn höfðu ekki undan að ryðja göturnar. Ófært var orðið í hverfinu um ellefuleytið í gærmorgun og var því lokað um hádegisbil. Það var svo opnað aftur klukkan 17 í gær og voru meðfylgjandi myndir tók Engilbert þá. Engilbert segir að það sé ekki algengt að það þurfi að loka heilu hverfunum en það komi þó fyrir, sérstaklega í suðvestan hvassviðri eins og var fyrir norðan í gær. „Það getur verið ansi skætt þarna sérstaklega í efri byggðum. Það fór bara allur snjórinn úr Hlíðarfjalli og fauk hingað niður í bæ.“ Aðspurður hvernig fólk í hverfinu hafi tekið lokuninni í hverfinu segir Engilbert að flestir hafi tekið því með jafnaðargeði: „Það var svolítið erfitt að loka, fólk reyndi að keyra framhjá þó að það kæmist alls ekki. Fólk sneri því bara við og keyrði til baka.“ Engilbert segir að ruðningarnir eftir snjómoksturstækin hafi verið milli 5 og 6 metrar á hæð en unnið var stanslaust að því að moka frá klukkan 8 í gærmorgun þar til klukkan 19. Engilbert segir að nú sé verið að ýta út ruðningum þar sem það sé hægt; það þurfi að rýma til því það er aftur spáð snjókomu á morgun. „Þetta er bara endalaus mokstur,“ segir Engilbert. Um 20 snjóruðningstæki eru á götum Akureyrarbæjar að jafnaði og jafnvel um 30 talsins þegar mest lætur. Hver dagur í mokstri kostar bæinn um nokkrar milljónir króna.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Sjá meira