Slökkviliðsmenn unnu í veðurlottóinu í Grindavík Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. desember 2014 13:13 Frá vettvangi í Grindavík í nótt. Vísir/Jóhann K. Jóhannsson
Slökkviliðið í Grindavík hefur lokið störfum eftir þrettán tíma vinnu við að ráða niðurlögum elds sem kviknaði í fiskvinnsluhúsinu Mölvík í Grindavík seint í gærkvöldi. Slökkviliðsstjóri segir mikla heppni að veður hafi verið gott við slökkvistörf. Tjón sé þó mikið. Fiskvinnusluhúsið, sem er í eigu Stakkavíkur, er staðsett á hafnarsvæðinu í Grindavík. Slökkvilið bæjarins ásamt aðstoðarmönnum frá Brunavörnum Suðurnesja og björgunarsveitum Landsbjargar börðust við eldinn utanfrá. Húsið er byggt úr strengjasteypubitum, sem getur verið stórhættuleg ef hún hitnar mikið og vírar slitna. „Við höfum sennilega verið mest þrjátíu og þar af vorum við með menn úr björgunarsveitum,“ sagði Ásmundur Jónsson, slökkviliðsstjóri í Grindavík, við fréttastofu á vettvangi í nótt. Slökkviliðsmenn rufu meðal annars þakið til að komast að eldinum og náðu að verja hluta hússins. „Það logaði vel upp úr þakinu og við náðum strax að slá á það. Við sáum strax að það væri ekki heimilt að fara inn í þann hluta hússins þar sem eldurinn var.“ Engan sakaði þrátt fyrir hættulegar aðstæður. Eldsupptök eru ókunn, en lögregla rannsakar nú málið. Ásmundur telur að um mikið tjón sé að ræða en verr hefði getað farið. „Það er lottó hjá okkur að fá svona veður. Hefði verið vindur hefði verið lítið hægt að ráða við þetta.“ Viðtal við Ásmund má sjá í spilaranum að ofan auk myndefnis frá vettvangi í albúmi hér að neðan.
Tengdar fréttir Eldsvoði í Grindavík í nótt Mikið tjón varð í eldsvoða í Grindavík í nótt þegar eldur kviknaði í fiskvinnsluhúsi Stakkavíkur á hafnarsvæðinu á tólfta tímanum í gærkvöldi. 18. desember 2014 07:03 Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Sjá meira
Eldsvoði í Grindavík í nótt Mikið tjón varð í eldsvoða í Grindavík í nótt þegar eldur kviknaði í fiskvinnsluhúsi Stakkavíkur á hafnarsvæðinu á tólfta tímanum í gærkvöldi. 18. desember 2014 07:03