Lofa fyrsta flokks skemmtun í Hörpu Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 18. desember 2014 18:50
Tónlistarhúsið Harpa iðaði af lífi í dag þegar meðlimir London Philharmonic Orchestra hituðu upp fyrir tvenna stórtónleika í kvöld og á morgun. Stjórnandinn lofar fyrsta flokks skemmtun. Andrúmsloftið var rafmagnað baksviðs í Hörpu í dag þegar sjötíu og tveir meðlimir London Philharmonic Orchestra komu saman til æfinga. Sinfóníuhljómsveitin þykir ein sú besta í heimi en hún var stofnuð árið nítján hundruð þrjátíu og tvö hefur síðan skapað sér orðspor sem framsækin og ævintýragjörn sveit. Um stórviðburð er að ræða í íslensku tónlistarlífi og verða þessir tónleikar vafalaust með hápunktum tónlistarársins. Gestastjórnandinn er Íslendingum góðu kunnur. Osmo Vanska var um árabil aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands. „Þetta er ein merkasta hljómsveit í heimi,“ segir Osmo, stjórnandi. „Það er alltaf ánægjulegt að vinna með henni.“ Einleikari verður norski píanósnillingurinn Leif Ove Andsnes sem nýlokið hefur við að hljóðrita alla píanókonserta Beethovens en hann hefur áður tekið höndum saman við Osmo. „Beethoven kemur alltaf á óvart. Hann tekur mann kverkataki og segir: Hlustaðu. Ég hef nokkuð mikilvægt fram að færa. Og það er ekkert kurteisishjal, það snýr að kjarna hlutanna,“ segir Leif Ove Andsnes. „Ég spilaði með Osmo Vänskä, með annarri hljómsveit, sama verk fyrir 15 árum. Svo nú vona ég að við komum öll saman. Ég hlakka svo til tónleikanna í þessum stórkostlega sal.“ Meistari Beethoven verður áberandi á tónleikunum og Leif og Osmo lofa stórkostlegri skemmtun. „Ég vonast til að ná einstökum flutningi á þessu stórkostlega verki, fimmta píanókonsert Beethovens, sem gefur svo mikla tilfinningu fyrir frelsi og manngæsku,“ segir Leif að lokum.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira