55 bílar sinna snjóhreinsun í Reykjavíkurborg Stefán Árni Pálsson skrifar 19. desember 2014 10:05 Heildarlengd gatna sem þarf að hreinsa er 445 km. vísir/pjetur
Í dag verða í heildina um 55 öflugir bílar og tæki nýtt til snjóhreinsunar í Reykjavíkurborg og að auki er 25 manna reyndur flokkur fá hverfastöðvunum við störf á flokkabílum með ýmsan búnað. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni. Í nótt klukkan 4:00 var mannskapur og tæki ræst út til starfa við snjóhreinsun og hálkueyðingu í Reykjavík. Í tilkynningunni segir að skipta megi verkefnum Reykjavíkurborgar við snjóhreinsun og hálkueyðingu í þrennt eftir hvort um er að ræða umferðargötur, stíga og gangstéttar eða stofnanalóðir og strætóskýli. Aðstæður kalla á mismunandi tækjakost og aðferðir, en markmiðið er það sama: að tryggja greiðar leiðir. Í dag verða 35 bílar og vinnuvélar notaðar við snjóhreinsun og hálkueyðingu á umferðargötum og eru þá ótaldar vélar Vegagerðarinnar sem sinnir snjóhreinsunar á stofnbrautum að miklu leyti. Götum er skipt í þjónustuflokka eftir forgangi og var unnið í öllum flokkum gatna í gær og verður áfram í dag og næstu daga. Heildarlengd gatna sem þarf að hreinsa er 445 km. og þær þarf að fara oft til að ryðja öllum snjó. Á stígum og gangstéttum eru 13 sérútbúnar dráttarvélar með plóga og sanddreifingarbúnað á ferðinni og hafa verið frá því klukkan fjögur í nótt og verða fram á kvöld. Heildarlengd stíga og gangstétta sem falla undir vetrarþjónustu eru 687 km. Sérstakur hópur með 6 traktorsgröfur var einnig ræstur út í nótt en hann sér um hreinsun á strætóbiðstöðvum, sem og við leikskóla, grunnskóla, sundlaugar og nokkrar stofnanir Reykjavíkurborgar. Þá er um 25 manna hópur frá hverfastöðvunum sem sér um mokstur á stöðum sem tæki komast ekki að og einnig sér hópurinn um að sanda og salta við stofnanalóðir og á strætóbiðstöðum.
Mest lesið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent Bíll valt í Kópavogi Innlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Innlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Fleiri fréttir Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Sjá meira