Blóðlæknir segir upp störfum Aðalsteinn Kjartansson skrifar 19. desember 2014 13:54 Staðan er ekki björt á Landspítalanum eftir uppsögn sérfræðings í blóðlækningum í morgun. Vísir/Vilhelm
Blóðlæknir á Landspítalanum og rannsóknarstofu í blóðmeinafræði hefur sagt upp störfum. Uppsögn hans tekur gildi 1. janúar næstkomandi. Læknirinn hefur unnið á spítalanum síðastliðin fjórtán ár. Yfirlæknir blóðmeinafræðideildar segir uppsögnina mjög alvarlega.Páll Torfi segist ekki vera bjartsýnn á framhaldið; blóðlæknar vaxi ekki á trjánum.Vísir/JAKSvartsýnn á stöðuna„Ég get ekki sagt að ég sé voðalega bjartsýnn í dag. Hefðirðu hringt í mig í morgun klukkan níu þá væri ég dálítið brosandi en núna er ég með skeifu,“ segir Páll Torfi Önundarson, yfirlæknir blóðmeinafræðideildar, í samtali við fréttastofu. „Staðan lítur illa út því í staðin fyrir að starfa í 4,6 stöðugildum þá munum við núna starfa í 3,9 stöðugildum á tveimur deildu, annarsvegar rannsóknardeildinni, blóðmeinafræðinni, og hinsvegar blóðlækningadeildinni,“ segir hann. „Á blóðlækningadeildinni liggur veikasta fólk Landspítalans,“ segir hann. „Fólk sem er illa mergbilað og framleiðir ekki blóð af ýmsum blóðsjúkdómum eða út af krabbameinsmeðferð. Þegar að það fækkar læknum sem að sinna því þá lætur eitthvað undan. Menn bara gefast upp og brenna út.“ Sjúklingar á blóðlækningadeildinni eru með veikustu sjúklingum spítalans.Vísir/Getty ImagesStöðugildum hefur fækkað Páll Torfi bendir á að fækkun hafi orðið á stöðugildum sérfræðinga á þessu sviði undanfarin ár. Hann segir að fyrir nokkrum árum hafi verið níu sérfræðingar á sviðinu og stöðugildin sex og hálft en verða nú tæplega fjögur. „Það kæmi mér ekki á óvart. Ég hef heyrt að einni annarri yfirvofandi uppsögn en ég veit svosem ekki um fleiri,“ segir hann. „Það er ekki í augsýn að við séum að fá nýja sérfræðinga til landsins,“ segir hann og bætir við að lausn sé ekki í augsýn. „Þeir vaxa ekki á trjánum og það er engin erlendis sem er búinn að ljúka þessu sérnámi og hafa huga á því að koma heim,“ segir hann og bætir við að þeir sem enn séu í námi hafi gefið til kynna að þeir séu ekki á leiðinni heim.
Mest lesið Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira