Blóðlæknirinn segist útbrunninn af álagi Aðalsteinn Kjartansson skrifar 19. desember 2014 14:41 „Ég treysti mér ekki lengur til að vinna við þessar aðstæður,“ segir Brynjar Viðarsson, sérfræðingur í blóðsjúkdómum, um ástæður uppsagnar sinnar. Vísir/Vilhelm
Brynjar Viðarsson, sérfræðingur í blóðsjúkdómum, sagði upp í morgun. Hann segist þreyttur á stöðunni og að hann geti ekki lengur unnið við þær aðstæður sem hér. Í uppsagnarbréfinu sem hann afhendi yfirlækni í morgun segist hann vera gjörsamlega útbrunninn.Uppsagnarbréf Brynjars.„Ég treysti mér ekki lengur til að vinna við þessar aðstæður,“ segir Brynjar í samtali við Vísi. „Það eru 14 ár síðan ég kom heim og það hefur, ef eitthvað er, aukist álagið smám saman. Upphaflega var í 100 prósent starfi en er núna kominn niður í 70 prósent en er samt að vinna 100 prósent. Ég þarf bara að hlaupa hraðar og hef minni tíma til að sinna sjúklingum eins og þeim á að vera sinnt.“ Brynjar segir að staðan sé óforsvaranleg gagnvart sjúklingunum. Hann sér ekki teikn um að staðan muni breytast á næstunni en heldur þó í vonina. „Ég sé ekki að hlutirnir verði neitt betri á næstu árum. Ég hef fengið mig fullsaddan af þessum aðstæðum,“ segir hann. Hann er ekki búinn að gera upp við sig hvað við taki hjá honum en hugsanlega fetar hann í fótspor annarra heilbrigðisstarfsmanna sem snúið hafa til starfa á Skandinavíu. „Ég er náttúrulega 30 prósent á stofu sem ég kem til með að halda áfram á í einhvern tíma en það getur vel verið að ég skoði hlutastarf á Skandinavíu,“ segir hann. „Ég er bara ekki búinn að gera það upp við mig. Ég vona að hlutirnir breytist, þó það gerist ekki á næsta ári að einhverjir nýir sérfræðingar komi, en þannig að maður sjái smá ljós í myrkrinu. Þá gæti ég hugsanlega endurskoðað afstöðu mína,“ segir hann og bætir við: „Maður getur ekki boðið sjúklingunum sínum upp á þetta.“Páll Torfi var ekki bjartsýnn á stöðuna þegar fréttastofan ræddi við hann um uppsögnina.Vísir/JAKBrynjar segir að ákvörðunin hafi verið lengi í býgerð en hann afhenti uppsagnarbréfið í morgun. Í samtali við fréttastofu fyrr í dag sagði Páll Torfi Önundarson, yfirlæknir blóðmeinafræðideildar, að staðan væri svört. „Á blóðlækningadeildinni liggur veikasta fólk Landspítalans,“ sagði hann. „Þegar að það fækkar læknum sem að sinna því þá lætur eitthvað undan. Menn bara gefast upp og brenna út.“ Ekki er útilokað að Brynjar hætti við uppsögnina. „Það eru engir nýir sérfræðingar að koma heim, það er engin nýliðun, við verðum bara eldri og þreyttari sem fyrir erum. Þessu þarf að snúa við. Ef að það gerist þá verð ég bjartsýnn en það þarf eitthvað að gerast,“ segir hann.
Tengdar fréttir Blóðlæknir segir upp störfum „Staðan lítur illa út,“ segir yfirlæknir blóðmeinafræðideildar. 19. desember 2014 13:54 Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Fleiri fréttir Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Sjá meira
Blóðlæknir segir upp störfum „Staðan lítur illa út,“ segir yfirlæknir blóðmeinafræðideildar. 19. desember 2014 13:54