Innlent

Alvarlegt bílslys á Krísuvíkurvegi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
TF-SYN á vettvangi slyssins í dag.
TF-SYN á vettvangi slyssins í dag. Mynd/Landhelgisgæslan
Fjórir voru fluttir á slysadeild Landspítalans í Fossvogi í dag eftir alvarlegt bílslys á Suðurstrandarvegi við afleggjarann á Krísuvíkurvegi á þriðja tímanum í dag. Svo vel vildi til að þyrla Landhelgisgæslunnar var á æfingu skammt frá.

Tveir Íslendingar og tveir ferðamenn voru í bílnum. Ökumaðurinn klemmdist í bílnum og var fluttur ásamt öðrum farþega með TF-SYN, þyrlu Landhelgisgæslunnar, á slysadeild. Hinir tveir voru fluttir á sjúkrahús í sjúkrabíl.

Staðsetning slyssins var ekki ljós í fyrstu og var bæði sendur sjúkrabíll úr Grindavík og Keflavík. Þá var tækjabíll sendur úr Grindavík. TF-SYN var á æfingaflugi á Reykjanesi um þetta leyti og hélt samstundis á staðinn um klukkan 14:45. Þyrlan lenti svo í Fossvogi klukkan 15:06.

Að sögn vakthafandi læknis á slysadeild er fólkið í stöðugu ástandi á bráðadeildinni og til rannsóknar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×