Innlent

Fagna auknum fjárframlögum til Landbúnaðarháskólans

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri
Frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri Vísir/Pjetur
Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur sent frá sér ályktun vegna aukinna fjárframlaga til Landbúnaðarháskóla Íslands sem nýlega voru kynntar. Sveitarstjórnin lýsir yfir mikilli ánægju með aukin fjárframlög til skólans þar sem mikilvægt sé að tryggja rekstrargrundvöll hans og efla enn frekar faglegt starf þar.

Þá segir sveitarstjórnin að skólinn sé ekki aðeins mikilvæg menntastofnun fyrir landið allt heldur einnig mikilvæg fyrir samfélagið í Borgarbyggð. Fjöldi fólks býr og starfar á Hvanneyri þar sem skólinn er og hefur verið kjölfestan í búsetunni.

Ályktunina má sjá í heild sinni hér að neðan:

Sveitarstjórn Borgarbyggðar lýsir yfir mikilli ánægju með þær tillögur um aukin fjárframlög til Landbúnaðarháskóla Íslands af hálfu ríkisvaldsins sem kynntar hafa verið. Mikilvægt er að tryggja rekstrargrundvöll skólans og efla enn frekar faglegt starf hans sem átt hefur undir högg að sækja vegna fjárskorts undanfarin ár.

Landbúnaðarháskólinn er mikilvæg menntastofnun fyrir landið allt en ekki síður mikilvægur samfélaginu í Borgarbyggð þar sem fjöldi fólks býr og starfar á Hvanneyri þar sem að skólinn er og hefur verið kjölfestan í búsetunni. Sveitarstjórn Borgarbyggðar lítur á þessa aukningu fjárframlaga sem mikilvægan áfanga í að verja Landbúnaðarháskólann sem sjálfstæða menntastofnun og fagnar því sérstaklega að stjórnvöld hafi sýnt málefnum Landbúnaðarháskólans skilning við núverandi aðstæður.

Samstaða heimamanna, Bændasamtaka Íslands og þingmanna kjördæmisins hefur verið til mikillar fyrirmyndar í þessu máli og mun vara áfram til eflingar skóla- og rannsóknarstarfs á Hvanneyri. Það er von okkar að hækkun á fjárveitingum til skólans verði til þess að öflugir einstaklingar sækist eftir starfi rektors skólans en það starf er laust til umsóknar um þessar mundir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×