Innlent

„Skjaldbakan hélt að myndavélin væri bragðgóð“

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Ólafur upplifði dálítið sem fáir lenda í.
Ólafur upplifði dálítið sem fáir lenda í. vísir/afp/aðsend ólafur axel
Flugkennarinn Ólafur Axel Kárason varð fyrir nokkuð einstöku atviki er hann var í fríi með foreldrum sínum í Mexíkó. Hann var við köfun þegar risaskjaldbaka gerðist nokkuð ágeng við hann. Myndband af atvikinu er neðst í fréttinni.

„Við erum stödd í Playa Del Carmen sem er skammt utan við Cancun í suðausturhluta landsins,“ segir Ólafur Axel. „Ég smitaðist af köfunargeninu af pabba og hef kafað síðan 2007. Pabbi er köfunarkennari og saman höfum við náð að draga mömmu og fleiri í þetta. Það er nauðsynlegt að eiga sameiginlegt áhugamál.“

Þessi staður sem þau dvelja á er þekktur fyrir að þar er að finna hákarlategund sem kallast Bull Shark en óvættinn í kvikmyndinni Jaws er byggð á þeirri tegund. Ólafur segir að í þetta skiptið hafi þau haldið sér fjarri hákörlunum því þeir séu styggir á þessum ártíma. Þeir hafi látið sér nægja að vera með þeim í um hálftíma.

„Við vorum nýkomnir niður á botn þegar við rákumst á skjaldbökuna. Hún virðist hafa haldið að myndavélin væri rosalega bragðgóð því hún reyndi ítrekað að narta í hana. Hún er á að giska svona 250-300kg.“

Ólafur segir að þegar svona skepna komi svamlandi að manni þá róist maður sjálfkrafa og njóti augnabliksins. Hann hafi oft kafað með skjaldbökum af þessari tegund en aldrei svona stórum.

„Pabba var að vísu ekki alveg sama. Það sést ekki á myndbandinu en hún hafði áður reynt að snæða hausinn á honum og honum leist ekki á blikuna þegar hún fór til hans aftur,“ segir Ólafur.

„Ég er nýkominn hingað frá Ameríu þar sem ég var að safna mér flugtímum. Mamma og pabbi halda síðan bráðum til Kúbu þar sem þau ætla að læra að dansa salsa.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×