Draga úr hækkun bóta Höskuldur Kári Schram skrifar 2. desember 2014 18:45
Dregið verður úr hækkun örorku- og atvinnuleysisbóta á næsta ári samkvæmt tillögu meirihluta fjárlaganefndar Alþingis. Breytingin á að spara um hálfan milljarð en formaður Öryrkjabandalags Íslands segir að tillagan sé skelfileg og bitni helst á þeim sem verst standa í samfélaginu. Upphaflega stóð til að hækka atvinnuleysisbætur og bætur almannatrygginga um 3,5 prósent á næsta ári. Í breytingartillögu meirihluta fjárlaganefndar Alþingis er lagt til að dregið verði úr þessari hækkun og að hún verði þess í stað 3 prósent. Meirihlutinn vísar í nýbirta þjóðhagsspá þar sem gert ráð fyrir minni verðlagshækkunum á næsta ári en fyrri spár reiknuðu með. Í heild á breytingin að spara tæpan hálfan milljarð. Tillagan kemur öryrkjum á óvart en áður höfðu þeir gagnrýnt hina upphaflegu hækkun. „3,5 prósent þótti okkur þegar of lítið. Að fara niður í 3 prósent er bara skelfileg tillaga,“ segir Ellen Calmon formaður Öryrkjabandalags Íslands. Ellen segir að tillagan bitni helst á þeim sem verst standa í samfélaginu. „Maður veltir því fyrir sér hvort að markmiðið sé þá að knésetja velferðina en ég vil og við viljum auðvitað trúa á ríkisstjórnina og að hún ætli að gera betur í þessum uppgangi sem boðaður hefur verið og vonandi fá örorkulífeyrisþegar líka að taka þátt í því,“ segir Ellen.
Mest lesið Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Innlent Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Innlent Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Fleiri fréttir Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Sjá meira