Stúdentar á Akureyri gagnrýna mismunun Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 3. desember 2014 09:12 Fram kemur í yfirlýsingu FSHA að HA hafi sýnt aðhald í rekstri á sama tíma og skorið hafi verið niður. Vísir/Pjetur
Félag stúdenta við Háskólann á Akureyri (FSHA) gagnrýna þá mismunun sem það telur birtast í tillögum fjármálaráðuneytisins á aukningu á fjárframlögum til háskóla í landinu. Samkvæmt tillögunum aukast framlögin um 617 milljónir króna. HA mun fá 10,3 milljónir króna en Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík samtals um 550 milljónir króna. Fram kemur í yfirlýsingu FSHA að HA hafi sýnt aðhald í rekstri á sama tíma og skorið hafi verið niður. Félagið segir að ef fjárframlög til skólans verði ekki aukin þurfi Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, að rökstyðja þá fullyrðingu sína að með auknum fjárframlögum til háskólanna sé nú greitt með hverjum nemenda, ólíkt því sem verið hefur síðustu misseri. FSHA segir að ekki verði betur séð en fullyrðing Vigdísar hvað varðar HA sé „úr lausu lofti gripin.“ Yfirlýsinguna í heild sinni má sjá hér að neðan:Félag stúdenta við Háskólann á Akureyri (FSHA) gagnrýnir harðlega þá mismunun sem birtist í tilllögum fjármálaráðuneytisins á aukningu á fjárframlögum til háskóla í landinu um 617 milljónir króna. Sú mismunun lýsir sér í því að nái tillögur ráðuneytisins fram að ganga mun rúm 90% framlaganna renna til tveggja háskóla, tæpar 300 milljónir til Háskóla Íslands og 257 milljónir til Háskólans í Reykjavík. Háskólinn á Akureyri mun samkvæmt þeim tillögum sem kynntar hafa verið fá 10,3 milljónir af heildarupphæðinni.HA hefur í verki sýnt aðhald í rekstri á sama tíma og hann hefur þurft að mæta niðurskurði fjárframlaga. Á síðustu sjö árum hefur skólinn skilað rekstrarafgangi sem notaður hefur verið til þess að greiða niður 100 milljón króna skuld við ríkið sem nú er að fullu greidd. Háskólinn er þriðji stærsti háskóli landsins og er með þriðja hæsta hlutfall birtra greina í rannsóknum á hvern akademískan starfsmann. Þá skilaði gæðaráð háskólanna úttekt nýverið þar sem skólinn fékk góðar niðurstöður auk þess sem niðurstöður könnunar sem Félagsvísindastofnun HÍ og Rannsóknarmiðstöð HA birtu í október að nemendur við skólann eru ánægðastir allra nemenda opinberu háskólanna með gæði námsins. Þá má þess geta að við skólann eru kenndar þrjár námsgreinar í grunnnámi sem einungis standa til boða við HA.FSHA hvetur þingmenn til að hafa í huga áður en lokið verður við fjárlagagerðina það mikla aðahald sem HA hefur sýnt undanfarin ár og komi til móts við kröfur yfirstjórnar skólans um aukna hlutdeild í þeim fjármunum sem til ráðstöfunar eru og ætlaðir eru til háskólasamfélagsins.Ef ekki verður brugðist við málefnalegum sjónarmiðum HA fer FSHA fram á það við formann fjárlaganefndar Alþingis, að hann rökstyðji þá fullyrðingu sína sem sett var fram í fjölmiðlum að með þessari aðgerð fái há¬skól¬arn¬ir að fullu greitt með hverj¬um nem¬anda ólíkt því sem hafi verið á und¬an¬förn¬um árum. Ekki verður betur séð að staðhæfing þess efnis hvað varðar HA sé úr lausu lofti gripin.Nú stendur á Alþingi að svara þeirri spurningu hvort rétt sé að Háskólinn á Akureyri gjaldi fyrir það að hafa sýnt ráðdeild í rekstri og hvort það sé mat þingsins að ekki eigi að veita sambærilegum fjármunum í nemanda á Akureyri og í nemanda á höfuðborgarsvæðinu?
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Sjá meira