Ráðist á unga konu á Selfossi - lagði til hennar með eggvopni Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 3. desember 2014 12:13 Lögreglan lýsir nú eftir upplýsingum um málið. Vísir/Pjetur
Ráðist var á unga konu á göngustíg á milli Suðurengis og Vesturhóla á Selfossi um klukkan 23:30 í gærkvöldi. Konan var á göngu ásamt hundi þegar karlmaður réðist aftan að henni á göngustígnum og snéri henni við. Maðurinn lagði til konunnar með eggvopni. Einnig sló hann hana hnefahögg í andlitið. Gat kom á yfirhöfn konunnar og hún hlaut minni háttar áverka. Maðurinn leitaði í vasa konunnar. Hundurinn lét til sín taka með því að gelta að manninum og glefsa í hann sem varð til þess að árásarmaðurinn lagði á flótta vestur göngustíginn og norður í átt að Lágengi. Göngustígurinn er ekki upplýstur.Þorgrímur Óli Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Selfossi.Mynd/Magnús Hlynur„Vegna myrkurs sá konan ekki framan í árásarmanninn en lýsti honum sem þreknum og um 175 sentimetrar á hæð. Hann var dökkklæddur með svarta húfu og frá honum lagði megnan vindlaþef. Skammt frá árásarstaðnum fannst svört húfa en ekki er staðfest hvort hún sé af árásarmanninum. Læknir var fenginn til að skoða áverka konunnar sem voru eins og fyrr segir minni háttar", segir Þorgrímur Óli Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn. Allir þeir sem gætu búið yfir upplýsingum um mannaferðir á göngustígnum á milli Lambhaga og Tryggvagötu á milli klukkan 23:00 og 23:40 í gærkvöldi eða kannast við lýsingu af manninum eru beðnir að hafa samband við lögregluna á Selfossi í síma 480 1010.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira