Vilja draga til baka hækkanir á greiðslum sjúklinga Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 3. desember 2014 13:10 Tillögurnar voru kynntar í Alþingishúsinu í dag. vísir/jhh
Stjórnarandstöðuflokkar vilja að að hækkanir er tengjast greiðslum almennings fyrir heilbrigðisþjónustu verði dregnar til baka, en að óbreyttu mun stjórnarmeirihlutinn hækka greiðslur um 1.900 milljónir á ári. Þá vilja þeir aukin framlög til lífeyrisþega og sérstakt framlag til BUGL. Einnig vilja þeir að framhaldsskólar verði opnir öllum, ekki einungis fólki yngra en 25 ára. Allir stjórnarandstöðuflokkar á Alþingi kynntu á blaðamannafundi í dag breytingartillögur á fjárlagafrumvarpinu. Breytingartillögurnar eru í fimm liðum og snúa meðal annars að heilbrigðisþjónustu, mennta- og menningarmálum, atvinnumálum og fleiru. Önnur umræða fjárlaga hefst á Alþingi klukkan hálf fjögur í dag. Flokkarnir vilja halda útvarpsgjaldi Ríkisútvarpsins óbreyttu og að það renni óskert til útvarpsins. Hvað varðar íslenska menningu er lagt til að framlög í verkefnasjóði skapandi greina og bókasafnssjóði rithöfunda verði aukin. Þá vilja þeir að opinberir háskólar fái stuðning til að efla samstarf og samvinnu og Listaháskólinn húsnæðisvarðar. Í atvinnumálum og innviðum samfélagsins er lagt til að fallið verði frá styttingu bótatíma atvinnuleitenda úr þremur árum í tvö og hálft og að aukið fé verði veitt í þjónustu við atvinnuleitendur. Ríkið greiði áfram umsamin framlög til að jafna örorkubyrði lífeyrissjóða. Stóraukin framlög í sóknaráætlun, nýframkvæmdir í vegamálum, hafnamálum og í framkvæmdasjóð eru á meðal tillagna og að framlög verði veitt á ný í Græna hagkerfið. Varðandi réttlætis- og mannréttindamál vilja flokkarnir að hætt verði við að fella niður framlag til ríkissaksóknara og lögreglu vegna þjónustu við þolendur kynferðisofbeldis. Þá vilja þeir auka framlag til Útlendingastofnunar og framlag til þingsályktunar um upplýsinga- og tjáningarfrelsi (IMMI). Hvað varðar fjármögnun tilagnanna segir: „Á móti auknum útgjöldum er gert ráð fyrir auknum tekjum vegna hækkun veiðigjalda til samræmis við fyrri áform og efldra skattrannsókna, m.a. með tafarlausum kaupum á upplýsingum úr skattaskjólum og auknu framlagi til skattrannsóknarstjóra.“
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Sjá meira