Sex mánaða fangelsi fyrir að fróa sér yfir sofandi konu Samúel Karl Ólason skrifar 3. desember 2014 17:30 Maðurinn neitaði sök og sagðist ekki hafa hugmynd um hvernig þessar ásakanir væru til komnar. Vísir/Hari
Hérðsdómur Reykjaness dæmdi 28 ára gamlan karlmann í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa lagst upp í rúm til konu, strokið utan- og innanvert lærið og rass og fróað sér á meðan. Honum var einnig gert að greiða henni 250 þúsund krónur í miskabætur. Maðurinn neitaði alltaf sök og var sýknaður af því að hafa sýnt ósiðlegt athæfi með því að segja að hann væri graður og að hann langaði að sofa hjá henni. Við rannsókn lögreglu fannst ekki lífsýni í sængurfötunum sem nothæft var til DNA-kennslagreiningar. Konan segist hafa verið á djamminu með vinkonu sinni og þær hafi síðan farið heim til vinkonunnar. Þær buðu manninum með sér en þær þekktu hann báðar. Skömmu seinna fóru þær að sofa, en honum var boðið að sofa í sófa í stofunni og fékk hann sæng. Konan vaknaði um nóttina við að hann lá á milli þeirra í rúminu og var að káfa á henni og fróa sér. Vinkona hennar var þá steinsofandi. Hún segir manninn hafa stunið og sagt til skiptis sitt nafn og unnustu sinnar. „Ég reyni meira og meira og reyni að fá hann til að hætta og hann hættir ekkert fyrr en E (vinkonan) vaknar og hún er ekkert að gera sér grein fyrir hvað er að gerast strax, hún bara horfir á okkur.“ Þá segir hún að hann hafi ekki hætt, en þær hafi helt yfir hann bjór og rifið í hárið á honum og komið honum úr herberginu. Konurnar fóru svo úr íbúðinni og skildu hann eftir þar. Maðurinn sagði að þær hefðu hringt í sig og beðið hann um að þykjast vera kærasti vinkonu brotaþola til að bola í burtu stráki sem hafði elt þær heim. Síðar um nóttina hafi hann sofnað í sófanum og ekki vaknað fyrr en þær fóru út. Hann segist hafa verið beðinn um að passa hundinn sem væri í íbúðinni þar til náð væri í hann. Þá hafi hann sofnað og ekki vaknað aftur fyrr en lögreglan hafi bankað upp á og handtóku hann. Hann neitaði sök og sagðist ekki hafa hugmynd um hvernig þessar ásakanir væru til komnar. Í dómi héraðsdóms segir að þrátt fyrir ákveðið ósamræmi sé í framburði konunnar fyrir dómi og í skýrslutöku hjá lögreglu, hafi vitnisburður hennar jafnan verið skýr og afdráttarlaus. Þá sé saga hennar studd af vinkonu hennar. Dómurinn tekur tillit til að maðurinn hafi ekki sætt refsingu áður og því er dómurinn gerður skilorðsbundinn. Honum er einnig gert að greiða tæpar 700 þúsund krónur í málskostnað. Dóm Héraðsdóms Reykjaness má sjá hér.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Sjá meira