Innlent

Bæjarráð Akureyrar lýsir yfir þungum áhyggjum

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/pjetur
Bæjarráð Akureyrar hefur lýst yfir þungum áhyggjum vegna fjárframlaga til Háskólans á Akureyri sem koma fram í samþykktum tillögum fyrir aðra umræðu til fjárlaga fyrir árið 2015. Þetta kemur fram í bókun sem gerð var á fundi þeirra í gær.

Bæjarráðið hvetur stjórnvöld til að leiðrétta og auka framlög til skólans í endanlegu fjárlagafrumvarpi næsta árs til samræmis við hlutfallslega stærð skólans í íslensku háskólasamfélagi.

Í bókuninni segir að Háskólinn á Akureyri hafi sýnt mikla ráðdeild og farið í erfiðar aðgerðir til að bregðast við skertum fjárframlögum eftir efnahagshrunið. Það geti því ekki talist sanngjarnt að skólinn fái ekki framlag til að viðhalda núverandi starfi né tækifæri til uppbyggingar, nú þegar unnt er að bæta við heildarfjármagn í háskólum landsins, eins og fram kemur í tillögum fyrir aðra umræðu um fjárlög 2015.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×