Týndir lambaskrokkar frá SS á Selfossi Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 5. desember 2014 11:16 Þetta er ekki í fyrsta skipti sem skrokkar frá Klausturhólum týnast. Vísir / GVA „
Ég harma og biðst velvirðingar á því að mistök hafi átt sér stað,“ segir Guðmundur Svavarsson, framleiðslustjóri Sláturfélags Suðurlands (SS) þegar leitað var viðbragða hjá honum vegna nokkra týndra lambskrokka frá sauðfjárbónda í Grímsnesi. „Ég hef ekki fengið þetta tiltekna mál eða önnur sambærileg inn á borð til mín í haust enda eru þau alla jafna leyst á staðnum komi þau upp. Málavextir eru þeir að sauðfjárbúið á Klausturhólum í Grímsnes- og Grafningshreppi setti lömb í sláturhúsið á Selfossi 22. september í haust og ætluðu að taka sex skrokka heim. Þá kom í ljós að allir skrokkarnir voru týndir og fengu þau því skrokka frá öðrum, sem voru sagðir frítt vegna mistakana. Guðmundur segir ferlið flókið og erfitt sé að koma í veg fyrir mistök. „Þetta heimtökuferli er býsna flókið, með mörgum snertipunktum innanhúss og utan og erfitt að koma 100 prósent í veg fyrir mistök. Samhliða vexti í heimtöku höfum við leitast við að bæta ferla og aðstöðu, enda viljum við hafa þessa hluti í sem allra bestu lagi. Því er gott að fá ábendingar um það sem miður fer til að geta gert enn betur,“ segir hann. Bóndinn furðar sig á þessu. „Mér finnst skrítið hvernig þetta er hægt þar sem að skrokkarnir eru merktir með nafni bóndans og á miðanum stendur líka að þetta sé heimtekið. Ég er heldur ekki sátt við það að fá kjöt frá öðrum þegar maður vill sitt eigið kjöt“, segir Antonía Helga Guðmundsdóttir, sauðfjárbóndi á Klausturhólum þar sem eru um þrjúhundruð fjár. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem skrokkar frá Klausturhólum týnast. „Það er rétt, við höfum einnig lent í því að þeir týni sauðaskrokkum frá okkur oftar en einu sinni en við tökum þá alla heim þar sem að við fáum lítið fyrir þá og okkur finnst best sauðahangikjöt,“ segir Antonía Helga. „Nýlegt dæmi um týndan sauð var núna um daginn þegar það var slátrað 26. nóvember. Þá ætlaði vinkona mín að fá skrokkinn og fór því í SS til að sækja hann, nei, þá voru þeir búnir að týna honum. Hún spurði þá hvað þeir ætluðu þá að gera og þeir sögðust ekkert geta gert annað en að láta hana hafa annan skrokk, sem væri þá ekki sauður“, segir hún.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Sjá meira