Tekist á um fjárlög í tómum þingsal Heimir Már Pétursson skrifar 5. desember 2014 19:00 Katrín Jakobsdóttir og Ragnheiður Ríkharðsdóttir. Vísir/GVA/GVA
Dagskrá Alþingis hefur riðlast vegna langra umræðna um fjárlög en stjórnarandstaðan gagnrýnir að betri staða ríkisfjármála en reiknað var með sé ekki nýtt betur til að koma til móts við almenning í landinu. Fjárlagaumræðan er þó fyrr á ferðinni en í fyrra og ekki mörg stórmál sem ríkisstjórnin þarf að afgreiða fyrir jól. Það er ekki fjörinu fyrir að fara í annarri umræðu fjárlaga sem nú stendur yfir á Alþingi. Þingmenn stjórnarandstöðunnar tala meira og minna fyrir tómum sal í þeirri von að ná fram einhverjum breytingum á fjárlögunum. Stjórnarandstaðan kynnti viðamiklar breytingartillögur við fjárlagafrumvarpið á miðvikudag og stjórnarmeirihlutinn hefur einnig lagt fram margar breytingartillögur við frumvarpið.Er einhver von til þess að þið fáið eitthvað af þessum tillögum samþykktar?„Það verður auðvitað að koma í ljós. En það hefur komið fram hjá formanni fjárlaganefndar að það sé vilji til að skoða þessar tillögur. Ég hef fylgst mjög vel með umræðunni hér við fjárlögin og ég hef t.a.m. heyrt það frá þingmönnum Framsóknarflokksins að nokkrir þeirra hafi viðrað þá skoðun að það sé rétt að fylgja þeirri tillögu sem við gerum, þ.e.a.s. að fara ekki í þá aðgerð að lækka útvarpsgjaldið heldur leyfa því að halda sér og renna óskert til Ríkisútvarpsins,“ segir Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna. Þá segist Katrín leggja mikla áherslu á að fallið verði frá um 1.900 milljóna gjaldtöku í heilbrigðiskerfinu og að hún skynji skilning á því. Fjárlagaumræðan er þrátt fyrir allt um hálfum mánuði fyrr á ferðinni en á síðasta ári og ríkisstjórnin hefur ekki mörg önnur erfið mál sem hún pressar á fyrir jól. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir þingmenn vera að vinna að framgangi mála þótt þeir sitji ekki í þingsal og þeir fylgist með umræðunni með öðrum hætti. „Við erum hér í annarri umræðu og þá kemur minnihlutinn með sínar tillögur. Það verður jú að skoða það sem þau eru að leggja fram. En kostnaðarhliðin sem kemur fram í þeirra tillögum hlýtur þá að þýða að við verðum að draga úr einhverju öðru í fjárlagafrumvarpinu sjálfu eins og það liggur fyrir. Vegna þess að það eru ekki til meiri peningar. Menn verða að hugsa pínulítið um það líka,“ segir Ragnheiður. Katrín bendir hins vegar á að það kosti ríkissjóð ekkert að hætta við lækkun útvarpsgjaldsins. Það er líklegt að umræður standi fram á kvöld og teygist fram á mánudag og þá eru fjáröflunarfrumvörpin öll eftir sem gæti tekið nokkra daga að ræða um. Þingstörfum fyrir jól á að ljúka föstudaginn 12 desember samkvæmt starfsáætlun.
Mest lesið „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ Innlent Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Erlent „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Innlent „Mjög áhugaverð umræða“ Innlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Jói Fel málar með puttunum Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna Innlent Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Innlent Fleiri fréttir Skjálfti í Bárðarbungu metinn 4,1 að stærð Rýnt í Epstein-skjölin, prófkjör Viðreisnar og árás ungmenna „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Fjórðungur kosið í prófkjöri Viðreisnar Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ „Mjög áhugaverð umræða“ Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Breki Atlason gefur kost á sér á lista Miðflokksins Skjálfti fannst í Hveragerði Jói Fel málar með puttunum „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Stórleikurinn riðlar dagskrá margra Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Aldrei verið gefnar út fleiri rauðar viðvaranir Finnist hvergi eins sterk skilyrði til umhverfisverndar í lagareldi Streymi: Heilsan okkar: Meðferð offitu hjá fullorðnum Burðardýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Ráðhús Árborgar sprungið – 10 starfsmenn fluttir í annað húsnæði Sjá meira