Klámi dreift á Snapchat aðgangi Sjomlatips Jóhann Óli Eiðsson og Bjarki Ármannsson skrifa 7. desember 2014 23:33 Það er misjafn sauður í mörgu fé. vísir/getty
Facebook hóparnir Beautytips og Sjomlatips hafa verið talsvert í umræðunni undanfarna daga og vikur. Meðlimir hópanna samanlagt eru í kringum 20.000 og hafa miklar umræður farið fram á þeim. Til að mynda tóku hóparnir sig til og söfnuðu peningum til styrktar Mæðrastyrksnefndar. Einhverjir einstaklingar hafa hins vegar nýtt hópana til að auglýsa sölu á fíkniefnum. Fyrir skömmu stofnuðu einstaklingar innan hópana Snapchat reikninga. Þar getur hver sem er sent inn mynd eða myndskeið nafnlaust og birtist hún þá fyrir augum allra þeirra þúsunda sem nota aðganginn innan fimmtán mínútna. Geta ungir sem aldnir séð það sem fyrir augu ber en í gær voru komnar um áttatíu mínútur af myndefni inn á reikninginn. Á Snapchat-aðgangi Sjomla kennir ýmissa grasa. Sumir senda myndir af sér í tölvuleikjum, aðrir af sér að horfa á knattspyrnu, enn aðrir deila útliti kynfæra sinna með umheiminum og einhverjir hafa gengið svo langt að senda myndir af sér í kynlífsathöfnum. Í kvöld deildi einstaklingur í Sjomlahópnum á Facebook skjáskoti úr myndaflóðinu á Snapchat þar sem karlmaður hefur tekið mynd af sér að stunda kynlíf með konu. Hvorki sést í andlit hans né hennar.Skiptar skoðanir á klámefninu innan hópsins Miklar umræður hafa spunnist útfrá myndinni milli meðlima hópsins. Einhverjir vilja meina að myndbirtingin sé yfir strikið á meðan annar kvartar yfir því að sá sem deilir myndinni hafi blörrað kynfærin. Sá hinn sami tekur sig síðan sjálfur til og deilir myndinni óblörraðri. Einhverjir vilja meina að birtingin sé í lagi þar sem ekkert andlit sjáist og enn aðrir benda á að strákar séu nú og muni vera strákar áfram. Fjöldinn allur gantast með að tengja vini sína við myndina. Svo eru enn aðrir, en þó færri en hinir, sem leggja orð í belg og segja myndbirtinguna siðlausa. Verið sé að sverta hið góða orðspor síðunnar og vilja sjá innleggið fjarlægt.„Ég á mjög erfitt með að trúa því að báðir aðilar hafi verið samþykkir því að birta þetta á Snapchat og Facebook. Ég verð reiður á að sjá svona. Engin virðing er borin fyrir stelpunni eða blygðunarkennd fólks, þetta á ekki heima á samfélagsmiðlum. Ætla að fara að æla,“ segir einn meðlima hópsins.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fleiri fréttir Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Sjá meira