Innlent

Camilla æðir beint í fyrsta sæti lista

Jakob Bjarnar skrifar
Tómas útgefandi er ánægður með að hafa krækt í útgáfuréttinn á bók Camillu Lackberg, sem æðir beint í efsta sætið.
Tómas útgefandi er ánægður með að hafa krækt í útgáfuréttinn á bók Camillu Lackberg, sem æðir beint í efsta sætið.
Ljónatemjarinn eftir Camillu Lackberg kom út á fimmtudaginn og hún gerði sér lítið fyrir og stökk beint í fyrsta  sæti á Metsölulista Eymundsson.  Camilla á sér greinilega stóran aðdáendahóp hér á landi sem hefur  beðið í ofvæni  í tvö og hálft ár eftir nýrri bók, en þetta er níunda bók Camillu.

Tómas Hermannsson, útgefandi hjá Sögum, kann sér ekki læti og telur þetta stórtíðindi í bókabransanum; að einhver skáki glæpasagnahöfundunum Arnaldi Indriðasyni og Yrsu Sigurðardóttur í desembermánuði, en þau hafa nánast einokað efstu sæti bóksölulista í jólabókaflóði.

„Við fundum í aðdraganda útgáfunnar að það var mikil tilhlökkun meðal aðdáenda Camillu. Eftir að Bókatíðindi kom út fengum við fjölmargar fyrirspurnir. Við fengum Sigurð Þór Salvarsson, þann mikla snilling, til að þýða bókina en þetta er fimmta bókin sem hann þýðir bók eftir skáldkonuna. Við erum sérstaklega ánægð með það, hversu hratt og örugglega Sigurður Þór vann sitt verk, því bókin er til þess að gera nýkomin út í Svíþjóð, kom þar út 17. nóvember. Og hún situr einmitt í efsta sæti lista í sínu heimalandi.“

Tveir bóksölulistar eru í gangi núna, sem er til þess fallið að rugla áhugamenn um bóksölu í ríminu; listinn sem Félag íslenskra bókaútgefenda byggir á er með stórmarkaðina inni í sínum tölum, þannig að þar eru fleiri seld eintök að baki listum. En, Eymundsson er hins vegar sérhæfð bóksölukeðja og menn líta einnig til lista sem sú búð gefur út. Kamp Knox  heldur öðru sætinu  en DNA fer niður í það þriðja. Þín eigin þjóðsaga eftir Ævar Þór Benediktsson  er áfram í fjórða sæti frá því fyrir viku og Náðarstund eftir Hannah Kent er aftur komin á  Metsölulista Eymundsson, hún er núna í fimmta sæti.

Og ef áfram er garfað í Metsölulista Eymundsson þá hækkar Gulaspjaldið í Gautaborg  sig  úr níunda sæti í það sjötta. Sveitin í sálinni  er ný á lista  í sjöunda sæti. Saga þeirra, sagan mín er í áttunda sæti, Skálmöld Einars Kárasonar  er í níunda  og svo er í tíunda sæti er Vísindabók Villa númer 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×