Camilla æðir beint í fyrsta sæti lista Jakob Bjarnar skrifar 8. desember 2014 16:55 Tómas útgefandi er ánægður með að hafa krækt í útgáfuréttinn á bók Camillu Lackberg, sem æðir beint í efsta sætið.
Ljónatemjarinn eftir Camillu Lackberg kom út á fimmtudaginn og hún gerði sér lítið fyrir og stökk beint í fyrsta sæti á Metsölulista Eymundsson. Camilla á sér greinilega stóran aðdáendahóp hér á landi sem hefur beðið í ofvæni í tvö og hálft ár eftir nýrri bók, en þetta er níunda bók Camillu. Tómas Hermannsson, útgefandi hjá Sögum, kann sér ekki læti og telur þetta stórtíðindi í bókabransanum; að einhver skáki glæpasagnahöfundunum Arnaldi Indriðasyni og Yrsu Sigurðardóttur í desembermánuði, en þau hafa nánast einokað efstu sæti bóksölulista í jólabókaflóði. „Við fundum í aðdraganda útgáfunnar að það var mikil tilhlökkun meðal aðdáenda Camillu. Eftir að Bókatíðindi kom út fengum við fjölmargar fyrirspurnir. Við fengum Sigurð Þór Salvarsson, þann mikla snilling, til að þýða bókina en þetta er fimmta bókin sem hann þýðir bók eftir skáldkonuna. Við erum sérstaklega ánægð með það, hversu hratt og örugglega Sigurður Þór vann sitt verk, því bókin er til þess að gera nýkomin út í Svíþjóð, kom þar út 17. nóvember. Og hún situr einmitt í efsta sæti lista í sínu heimalandi.“ Tveir bóksölulistar eru í gangi núna, sem er til þess fallið að rugla áhugamenn um bóksölu í ríminu; listinn sem Félag íslenskra bókaútgefenda byggir á er með stórmarkaðina inni í sínum tölum, þannig að þar eru fleiri seld eintök að baki listum. En, Eymundsson er hins vegar sérhæfð bóksölukeðja og menn líta einnig til lista sem sú búð gefur út. Kamp Knox heldur öðru sætinu en DNA fer niður í það þriðja. Þín eigin þjóðsaga eftir Ævar Þór Benediktsson er áfram í fjórða sæti frá því fyrir viku og Náðarstund eftir Hannah Kent er aftur komin á Metsölulista Eymundsson, hún er núna í fimmta sæti. Og ef áfram er garfað í Metsölulista Eymundsson þá hækkar Gulaspjaldið í Gautaborg sig úr níunda sæti í það sjötta. Sveitin í sálinni er ný á lista í sjöunda sæti. Saga þeirra, sagan mín er í áttunda sæti, Skálmöld Einars Kárasonar er í níunda og svo er í tíunda sæti er Vísindabók Villa númer 2.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fleiri fréttir Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Sjá meira