Toshiki Toma horfði í ranga átt í 15 ár Kjartan Atli Kjartansson skrifar 9. desember 2014 16:47 Toshiki Toma horfði í átt að Vopnafirði en ekki í átt að Norðurpólnum.
Toshiki Toma, prestur innflytjenda, horfði í ranga átt í fimmtán ár. Hann hélt að gluggi á vinnuherbergi í íbúð sinni sneri í norður en hann sneri í raun í austur. Toshiki segist yfirleitt vera mjög ratvís og þess vegna kom þessi uppgötvun honum í opna skjöldu. „Ég var með áttavita í símanum og var inni í herberginu. Það kom mér mjög á óvart þegar ég sá að ég hafði ekki verið að horfa í átt að Norðurpólnum heldur í átt að Vopnafirði,“ útskýrir hann hlæjandi og heldur áfram: „Ég fór á Google Earth og fletti húsinu mínu upp. Þá var þetta staðfest; ég var búinn að horfa í ranga átt í fimmtán ár.“ Toshiki vakti athygli á þessu á Facebook-síðu sinni. Honum finnst málið fyndið en sendir um leið kveðju sína til Vopnfirðinga, sem hann hefur horft til í einn og hálfan áratug án þess að vita af því. Í athugasemdum segir einn Facebook-vinur hans sem er frá Vopnafirði að fallegra sé á Vopnafirði en á Norðurpólnum auk þess sem hann þakkar fyrir kveðjuna. Toshiki svarar: „Já, víst er Vopnafjörður fallegri en Norðurpóllinn og hlýrri bæði í lofthita og mannhjarta!“ Post by Toshiki Toma.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Sjá meira