Vill að veiðileyfi verði virðisaukaskattskyld Bjarki Ármannsson skrifar 9. desember 2014 19:30 Jón Þór vill að útleiga veiðiréttar og sala veiðileyfa njóti ekki undanþágu virðisaukaskatts. Vísir/GVA/Stefán
Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, hyggst leggja fram breytingartillögu á þingi þar sem lagt er til að útleiga veiðiréttar og sala veiðileyfa í ám og vötnum njóti ekki lengur undanþágu virðisaukaskatts. Hann leitar um þessar mundir meðflutningsmanna. Í tilkynningu segir Jón Þór að stjórnvöld geti ekki sagt að meiri peningar séu ekki til í heilbrigðiskerfið á meðan vanrækt er að afnema undanþágu virðisaukaskatts á laxveiði og sækja þannig „sanngjarnan og skilvirkan skatt.“ Tillaga Jóns Þórs um að afnema þessa undanþágu er ekki ný af nálinni og hefur Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði, til að mynda nokkrum sinnum hvatt til þess að veiðileyfi verði virðisaukaskattskyld. Þessu eru veiðimenn þó andvígir. „Veiðileyfi er í raun veiðileiga og hún er lögum samkvæmt fasteignaleiga,“ sagði Óðinn Sigþórsson, formaður Landssambands veiðifélaga , í samtali við Vísi nýverið. „Sú leiga er ekki virðisaukaskattskyld. Veiðiréttindi eru metin til fasteignaverðs og eru hluti af fasteign veiðiréttareiganda.“ Í breytingartillögu Jóns Þórs, sem fylgir með fréttinni í viðhengi, er þó lagt til að líta á veiðileyfi líkt og útleigu hótelherbergja, sem flokkast undir fasteignaleigu en er þó virðisaukaskattskyld. „Skattastefna ríkisstjórnarinnar er að gera skattkerfið skilvirkara, meðal annars með því að afnema núna fyrir jól margar undanþágur á VSK, s.s. á ferðaþjónustu,“ segir í tilkynningu Jóns Þórs. „Hingað til hefur Ríkisskattstjóri álitið að veiðileyfi með fast gjald óháð veiðifangi skuli flokka sem fasteignaleigu og því undanþegin VSK. Með þessari breytingartillögu segir löggjafinn að þó líta megi á veiðileyfi, eins og útleigu hótelherbergja, sem fasteignaleigu þá eru hvoru tveggja þó virðisaukaskattskylt.“
Tengdar fréttir Veiðileyfi enn undanþegin virðisaukaskatti Ekki er gert ráð fyrir því að veiðileyfi í ám landsins verði virðisaukaskattskyld í nýjum fjárlögum sem kynnt voru í vikunni. 12. september 2014 08:00 Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fleiri fréttir Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Sjá meira
Veiðileyfi enn undanþegin virðisaukaskatti Ekki er gert ráð fyrir því að veiðileyfi í ám landsins verði virðisaukaskattskyld í nýjum fjárlögum sem kynnt voru í vikunni. 12. september 2014 08:00