Segir ríkisstjórnina forgangsraða fyrir þá efnameiri í samfélaginu Heimir Már Pétursson skrifar 30. nóvember 2014 19:44
Formaður Samfylkingarinnar segir ríkisstjórnina forgangsraða fyrir þá efnameiri í samfélaginu og auka álögur á þá efnaminni í fjárlagafrumvarpi næsta árs. Nýta hefði átt svigrúm í ríkisfjármálum til að draga úr skuldum ríkisins og til að styrkja innviði samfélagsins. Eftir að meirihluti fjárlaganefndar skilaði tillögum sínum til breytinga á fjárlagafrumvarpinu í gær, liggur nokkuð ljóst fyrir hvernig frumvarpið kemur til með að líta út í sinni lokamynd. Formaður Samfylkingarinnar segir frumvarpið þýða auknar álögur á almennnig. Eins og fram kom í fréttum okkar í gær leggur meirihluti fjárlaganefndar til aukin útgjöld upp á rúmar fimmtán hundruð milljónir króna á næsta ári en að meðtöldum breytingartillögum frá ríkisstjórninni aukast útgjöldin um hátt í fjóra milljarða. Þá liggja tekjuöflunartillögur stjórnarflokkanna nokkuð ljósar fyrir.Árni Páll Árnasonvísir/stefán„Það er greinilegt að ríkisstjórnin ætlar að gera grundvallarbreytingar. Matur verður gerður dýrari og menning líka. Það er verið að auka álögur á venjulegt fólk í heilbrigðisþjónustu , auka kostnaðarhlutdeild okkar allra þegar við þurfum á heilbrigðisþjónustu að halda. Og þau halda sig við það að loka framhaldsskólunum fyrir fólki yfir 25 ára aldri,“ segir Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar. Allt feli þetta í sér grundvallarbreytingar á samfélagsgerðinni. Samfylkingin muni leggja fram annars konar breytingartillögur fyrir aðra umræðu fjárlaga sem hefst á Alþingi á þriðjudag. Stærstu einstöku breytingartillögur meirihlutans fela í sér 500 milljóna framlag til innanlandsflugvalla og 300 milljónir til ljósleiðaravæðingar landsbyggðarinnar. „Jú, það eru ýmsar tillögur í tillögugerð meirihlutans sem við erum sátt við, erum sammála og höfum verið að tala fyrir slíkum breytingum. En eftir stendur eftir alla tillögugerð ríkisstjórnarmeirihlutans að það er ekki lagt nægjanlegt fé til Landsspítalans og það er ekki lagt fé til Háskólans til að veita þá þjónustu sem hann er að veita í dag,“ segir Árni Páll. Að óbreyttu þurfi að loka námsleiðum. Ríkið greiðir 70 til 80 milljarða á ári í vexti vegna skulda ríkissjóðs. Árni Páll segir að hann hefði viljað nýta það svigrúm sem nú er í ríkisfjármálum með allt öðrum hætti en ríkisstjórnin. „Og það er líka mjög erfitt fyrir okkur að gera breytingartillögur núna þegar ríkisstjórnin er búin að vinna að því skipulega í eitt og hálft ár að auka álögur á venjulegt fólk, draga úr sköttum á þá sem best hafa það og segir síðan að það séu engir peningar til,“ segir Árni Páll Árnason.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Sjá meira