Innlent

Gripin með fölsuð skilríki á Suðurnesjum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fjögur framvísuðu skilríkjum annarra aðila.
Fjögur framvísuðu skilríkjum annarra aðila. Vísir/Getty
Lögreglan á Suðurnesjum hafði um helgina afskipti af átta unglingum yngri en átján ára sem voru inni á vínveitingastöðum í umdæminu. Um var að ræða bæði pilta og stúlkur.

Fjögur þeirra framvísuðu skilríkjum annarra aðila. Lögregla flutti unglingana á lögreglustöð og sóttu forráðamenn þeirra þá þangað. Barnaverndaryfirvöldum var tilkynnt um málin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×