Sér fram á áframhaldandi verkfallsaðgerðir hjá læknum Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 16. nóvember 2014 13:54
Önnur verkfallslota lækna í Læknafélagi Íslands hefst á miðnætti í kvöld en þá leggja læknar á rannsóknar, kvenna og barnasviði Landspítala niður störf. Verkfallslotur áttu upphaflega að vera þrjár, en formaður samninganefndar lækna segir algjöra kyrrstöðu vera í samningaviðræðum og gerir ráð fyrir að frekari verkfallsaðgerðir verði skipulagðar strax að þeim loknum. Stjórn landspítala hefur síðustu daga metið þau áhrif sem fyrsta verkfallslotan hafði á starfsemina, og er vinna hafin við að endurraða á fjölda biðlista sem lengst hafa mikið vegna verkfallsaðgerðanna. Það mun hafa áhrif á skipulagða tíma og aðgerðir sjúklinga eitthvað fram á næsta ár. Læknar á rannsóknar, kvenna- og barnasviði Landspítala leggja niður störf á miðnætti, auk þess sem verkfallið nær til heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni. Eru aðgerðirnar endurtekning á fyrri verkfallslotunni í október og nóvember. Sigurlaug Pétursdóttir er formaður samninganefndar lækna í læknafélagi Íslands. Hún segir viðræðurnar í algjörri kyrrstöðu og að engin tilboð hafi verið lögð fram. „Það er áfram verið að skoða tæknileg atriði samningsins en ekkert farið að þokast í eiginlega átt með að semja, varðandi tölur og slíkt,“ segir hún. „Þeir hafa ekki verið tilbúnir að hækka sig um neitt þannig að það er ekki til umræðu um að lækka sig heldur.“ Þriðja og síðasta skipulagða verkfallslotan hefst að öllu óbreyttu í desember. Sigurlaug segir líklegt að til frekari verkfallsaðgerða komi strax í janúar. „Það verður rætt á félagsfundi hjá okkur hvað tekur við en ég á alveg eins von á að það verði áframhaldandi verkföll í janúar. Og það sem verra er að ég á von á því að einhverjir gefist upp, því miður, og hætti,“ segir hún. „Þegar ekkert gerist í samningamálum og fólk getur gengið að stöðum erlendis þá auðvitað kemst hreyfing á einhvern hluta.“ Næsti fundur í deilunni er fyrirhugaður hjá ríkissáttasemjara á þriðjudag.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira