Forsætisráðherra vill skoða sátt á vinnumarkaði um launahækkun til lækna Heimir Már Pétursson skrifar 17. nóvember 2014 19:37
Forsætisráðherra segir ekki hægt að horfa til kjaradeilu lækna án tillitis til annarra þátta í samfélaginu, meðal annars til væntanlegra samninga á almennum markaði. Formaður Samfylkingarinnar segir forsætisráðherra ekki geta talað um þessi mál sem áhorfandi og sagt á ábyrgð annarra að leysa málið. Í dag eru þrjár vikur liðnar frá því fyrstu aðgerðir lækna hófust en þriðja verkfallslota þeirra hófst á miðnætti með þeim afleiðingum m.a. að yfir þúsund læknaviðtöl féllu niður í dag ásamt annarri þjónustu. En lítið hefur verið fundað í deilunni, þótt fundur sé boðaður á morgun. „Hversu lengi getur þetta gengið svona áfram? Hversu lengi er hægt að halda áfram án þess að samið sé í þessari deilu ef það á ekki að valda varanlegu tjóni fyrir samfélagið,“ spurði Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar á Alþingi í dag. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sagði ráðherra eins og aðra hafa áhyggjur af verkfalli lækna. Hins vegar væri ekki hægt að horfa á verkfallið án tilllits til almennrar stöðu á vinnumarkaði. „Þannig að við hljótum að spyrja hvort að hægt sé að mynda einhvers konar almenna sátt? Þá má m.a. spyrja stjórnarandstöðuna en ekki hvað síst aðila vinnumarkaðarins hvort að menn líti þannig á mál að staðan réttlæti breytingar á kjörum lækna; bætur umfram það sem hægt væri að semja um í fyrsta áfanga annars staðar,“ sagði Sigmundur Davíð. „Virðulegi forseti, fyrst af öllu, þá getur hæstvirtur forsætisráðherra ekki komið hér upp og talað eins og hann sé áhorfandi að þessari alvarlegu deilu. Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því að hæstvirtur forsætisráðherra og hæstvirtur fjármálaráðherra hafi ekki fundað með formanni samninganefndar ríkisins í þessari deilu. Það eru þá alvarleg afglöp ef svo er,“ sagði Árni Páll. En samkvæmt heimildum fréttastofunnar funduðu leiðtogar stjórnarflokkanna með formanni samninganefndar ríkisins fyrir helgi og fundur milli þeirra var einnig ráðgerður í dag. Árni Páll sagði að forsætisráðherra gæti ekki skýlt sér á bakvið að það væri annarra að leysa þessa deilu, þegar hann hefði getað tryggt frið á vinnumarkaði út kjörtímabilið með samningum í lok síðasta árs. „Hann er síðan búinn að gera allt sem hann mögulega getur til að sprengja upp samstarf við aðila vinnumarkaðarins. Og hann verður ósköp einfaldlega að búa sjálfur við þær aðstæður sem hann hefur þannig skapað. Það er ekki verkefni stjórnarandstöðunnar eða aðlila vinnumarkaðarins að skera hæstvirtan forsætisráðherra niður úr getuleysi hans til að eiga heilbrigð samskipti á vinnumarkaði,“ sagði formaður Samfylkingarinnar. Forsætisráðherra sagði alrangt að stjórnvöld hefðu sprengt upp samstarf við aðila vinnumarkaðrins og vel væri fylgst með læknadeilunni. En ítrekaði að skoða þyrfti heildarmyndina vildu menn ná sáttum. „Og þess vegna hlýtur að vera eðlilegt að spyrja hvort að hækkanir hjá læknum, umfram það sem samið hefur verið um annars staðar væri til þess fallið að, eins og háttvirtur þingmaður orðaði það, að sprengja upp sátt við aðila vinnumarkaðarins,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Kærastinn var á staðnum Erlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Sjá meira