Rúmlega fjögur þúsund nemendur eru 25 ára eða eldri Aðalsteinn Kjartansson skrifar 18. nóvember 2014 16:46 Heildarfjöldi skráðra nemenda á bóknámsbrautir í aldurshópnum nemur 4,6 prósentum. Vísir / GVA
Rúmlega sautján prósent nemenda, eða 4.384 nemendur, í framhaldsskólum landsins eru 25 ára eða eldri. Flestir þeirra eru skráðir í Tækniskólann, eða 1.213, en þar eru þeir 48,3 prósent allra nemenda skólans. Þetta kemur fram í svari Illuga Gunnarssonar, mennta- og menningarmálaráðherra, við fyrirspurn Oddnýjar G. Harðardóttur, þingkonu Samfylkingarinnar. Til stendur að veita framhaldsskólum ekki lengur fjármagn til að mennta nemendur sem eru 25 ára og eldri. Breytingarnar eru boðaðar í fjárlagafrumvarpi næsta árs sem er til umfjöllunar á Alþingi. Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að skólarnir fái ekki lengur peninga til að mennta þennan hóp. Það á þó ekki að takmarka aðgang þessa hóps að verknámi, að sögn Illuga. Aðrir framhaldsskólar sem eru með tiltölulega hátt hlutfall nemenda í þessum aldurshópi eru Fjölbrautaskólinn við Ármúla, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti og Menntaskólinn í Kópavogi. Þar er hlutfall skráðra nemenda 25 ára og eldri á bilinu frá 22,9 prósent til 32,3 prósent. Sé horft aðeins á þá nemendur sem skráðir eru á bóknámsbrautir er hlutfallið annað. Heildarfjöldi skráðra nemenda á bóknámsbrautir í aldurshópnum nemur 4,6 prósentum. Fjölbrautarskólinn við Ármúla er með hæsta hlutfall þeirra nemenda en 16,6 prósent nemenda skólans eru 25 ára og eldri á bóknámsbraut. Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu er með litlu lægra hlutfall bóknámsbrautanemenda í aldurshópnum, eða 16,4 prósent. Bak við þá tölu eru hinsvegar mun færri nemendur en í FÁ, eða 29.
Alþingi Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Fleiri fréttir Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Sjá meira