Vill að borgarstjórn styðji áfengisfrumvarpið Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. nóvember 2014 20:45 Hildur Sverrisdóttir borgarfulltúi.
Hildur Sverrisdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, vill að borgarstjórn samþykki ályktun til að styðja frumvarp Vilhjálms Árnasonar um breytingar á lögum um áfengisverslun. Hún lagði fram tillögu þess efnis á borgarstjórnarfundi í dag. Hildur flutti tillöguna fyrir hönd sjálfstæðismanna. Hún vísar til þess að í aðalskipulagi Reykjavíkur er gert ráð fyrir áherslum sem kallast „Kaupmaðurinn á horninu“ sem fela í sér að dagleg verslun og þjónusta sé í sem mestri nálægð við íbúana svo að þeir geti sótt sem mest af sinni daglegri verslun og þjónustu í nærumhverfi sínu en þurfi ekki að sækja hana á bíl. „Ég tel að það sé sjálfsagt að borgarstjórn Reykjavíkur, sem hefur skipulagsvald og ábyrgð, styðji allar þær tillögur sem muni búa til betra skipulag og sjálfbærari hverfi. Og þetta er eitt af því,“ segir Hildur. Það sé mjög augljóst að hverfi borgarinnar geti orðið sjálfbærari ef algeng neysluvara eins og áfengi væri seld í hverfunum sjálfum. Það þyrfti þá ekki að keyra hverfanna á milli. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri lagði til að málinu yrði vísað til borgarráðs, það væri umfangsmikið og nýtt að tillaga af þessu tagi væri lögð fram. „Við erum ósammála því. Það er ekki lengra síðan en í vor að borgarstjórn samþykkti að hvetja ríkisstjórnina til að halda þjóðaratkvæði um ESB-aðildarviðræður,“ segir hún. Ekki hafi það verið umfangsminna mál eða meira tengt Reykjavíkurborg. Hildur vonar að málið dagi ekki upp í stjórnkerfi borgarinnar heldur verði afgreitt.„Það er skrýtið að meirihluti sem hefur ekki gert neitt annað en hampa aðalskipulaginu og ekki síst öllum áherslum um sjálfbær hverfi skuli allt í einu ekki kannast við að það skipti máli,“ segir Hildur að lokum.
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Fleiri fréttir Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Sjá meira