Hildur Eir: Andlát á Facebook Ólöf Skaftadóttir skrifar 1. nóvember 2014 20:42 Hildur Eir Bolladóttir, prestur á Akureyri Vísir/Auðunn Níelsson
Presturinn Hildur Eir Bolladóttir gerir sér mat úr spurningu sem henni barst frá gamalli skólasystur sinni í pistli hennar frá því í dag þar sem hún fjallar um andlát á Facebook. „Spurningin varðaði meðal annars hlutverk samfélagsmiðla eins og Facebook þegar andlát verður," segir Hildur Eir og bætir við. „Þá var hún ekki að hugsa um það sem mest hefur verið í umræðunni og varðar ótímabærar andlátstilkynningar heldur það sem á eftir kemur, það er sorgarferlið og hvort Facebook sé í raun heppilegur vettvangur til úrvinnslu sorgar." Hildur bætir við að það sé merkilegt að skoða fyrirbærið Facebook sem hugsanlegt stuðningsnet í kjölfar andláts. Andlátstilkynningar á Facebook vandmeðfarnar „Þá tvinnast saman reynsla mín úr prestskap og reynslan af því að vera aðstandandi og vinur. Í fyrsta lagi vil ég taka fram að andlátstilkynningar á Facebook eru mjög vandmeðfarið mál og mikilvægt að stíga þar varlega til jarðar, það segi ég og skrifa vegna þess að ég veit að það situr mjög fast í syrgjendum ef hin válegu tíðindi hafa ekki farið rétta leið og borist þeim með beinum hætti af vörum ættingja eða fagfólks. Þannig ætti fólk í fyrsta lagi að fullvissa sig um að andlátið sé orðið opinbert áður en það tjáir sig á Facebook og síðan ætti hver og einn líka að spyrja sig hvort tengsl hans við hinn látna og fjölskylduna sé þess eðlis að hann eigi að setja inn status sem fjallar um málið," segir Hildur jafnframt í færslu sinni. „Hins vegar gegnir öðru máli um þá samhygð og samstöðu sem getur myndast með ástvinum hins látna á Facebook. Þar held ég að við séum farin að fjalla um veruleika sem er í raun ekki eins vandmeðfarin og hinn og það sem meira er bara býsna gagnlegur."Facebook getur verið þakklát leið til að nálgast syrgjendur Hildur nefnir jafnframt í pistli sínum að vissulega komi ekkert í stað nærveru á sorgarstundum. „Hins vegar gæti það orðið pínulítið yfirdrifið að fá alla Facebookvinina heim til sín í húsvitjun. Facebook getur engu að síður orðið mjög þakklát leið til að nálgast syrgjendur og ekki síður fyrir syrgjendur að finna að það er margt fólk með hugann við þá þó ekki sé það allt í beinum daglegum tengslum." Hildur segir fólki í sorg geta hlýnað mjög við það að skoða kveðjur frá fólki sem hefur í sjálfu sér engar skyldur gagnvart þeim en er bara samferðarfólk í þessu lífi. „Það getur líka verið mikil huggun fyrir þá sem þekktu hinn látna en ekki fólkið hans/hennar að fá að minnast viðkomandi í hópi vina sem deila minningum og tilfinningum en vegalengdir og aðstæður skilja að. Þá má heldur ekki gleyma að nánasta fjölskylda er oft mjög dugleg að setja inn myndir, tónlist, minningarorð og ljóð sem er alltaf hluti af úrvinnslu sorgar. Þannig myndast ákveðin gagnkvæmi á milli hópsins og nánustu ættingja."Fólk mun segja klaufalega hluti á viðkvæmum stundum „Nú gæti einhver spurt „er ekki meiri hætta á að fólk skrifi eitthvað klaufalegt á síðuna sem særir eða jafnvel vanvirðir minningu hins látna?“, heldur Hildur áfram. „Svarið við því er að fólk mun alltaf halda áfram að segja klaufalega hluti á viðkvæmum stundum, það er hluti af því að vera manneskja, það gerðist fyrir tíma Internetsins og það mun halda áfram að gerast á meðan fólk er í einhverskonar tengslum."
Mest lesið Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Erlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Innlent Svona verða bílastæðagjöldin hjá Háskóla Íslands Innlent Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Innlent Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Sjá meira