Innlent

Tvær líkamsárásir tilkynntar í nótt

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/HARI
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu í nótt um líkamsárás á Laugavegi. Tæplega tvítugur piltur gaf sig fram við lögregluþjóna og sagði að hann hafi fallið í götuna og næstum fyrir bifreið þegar dyravörður ýtti honum.

Hann kvartaði yfir eymslum í öxl.

Þá var tæplega þrítugur maður handtekinn á skemmtistað í Austurstræti, eftir að hann sló annan mann í andlitið. Lögreglan segir þann sem varð fyrir árásinni hafa fallið í gólfið og hruflast nokkuð í andliti.

Sá fór sjálfur á slysadeild, en árásarmaðurinn verður yfirheyrður þegar hann verður í ástandi til þess.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×