Ísland hyggst sýna metnað í loftslagsmálum Samúel Karl Ólason skrifar 2. nóvember 2014 16:20 Christiana Figueres og Gunnar Bragi Sveinsson. Mynd/Utanríkisráðuneytið
Christiana Figueres, framkvæmdastýra rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál, átti í gær fundi með Gunnari Braga Sveinssyni, utanríkisráðherra og Sigurði Inga Jóhannssyni, umhverfis- og auðlindaráðherra í dag. Hún er hér á landi til að taka þátt í Arctic Circle ráðstefnunni, sem fram fer um helgina. Samkvæmt tilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu lagði Figueres áherslu á að aðildarríki leggi fram metnaðarfullar áætlanir um minnkun á losun í yfirstandandi samningaviðræðum um nýtt hnattrænt samkomulag. Gunnar Bragi og Sigurður Ingi hétu stuðningi við væntanlegt Parísarsamkomulag sem stefnt er á að verði undirritað á næsta ári. Einnig sögðu þeir að Ísland hygðist sýna metnað í loftslagsmálum. Parísarsamkomulaginu er ætlað að taka gildi árið 2020 og setja ný markmið fyrir ríki heims til 2030. Figueres lagði þó áherslu á að nýr samningu verði að marka skýra stefnu í loftslagsmálum til lengri tíma. „Ráðherrarnir undirstrikuðu mikilvægi umhverfismála og að Ísland hefði það markmið að vera öðrum þjóðum fyrirmynd, m.a. með nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa. Einnig væri binding kolefnis úr andrúmslofti með skógrækt og landgræðslu mikilvægur þáttur í loftslagsstefnu Íslands og Ísland miðlaði þróunarríkjum af reynslu sinni á þessum sviðum í gegnum Jarðhitaskóla og Landgræðsluskóla Háskóla SÞ, sem starfræktir eru hér á landi,“ segir í tilkynningunni. Í því samhengi minntustu þeir á ræðu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í september. Að Ísland stefndi að því að hætta notkun jarðefnaeldsneytis; slíkt væri þegar raunin varðandi orkuframleiðslu til rafmagns og hitunar, en vinna þyrfti að þessu markmiði í samgöngum og fiskveiðum. Figueres heimsótti einnig Hellisheiðarvirkjun og kynnti sér niðurstöður nýrrar rannsóknar um kolefnisbindingu í jarðvegi. Rannsóknin var að miklum hluta unnin af íslenskum vísindamönnum og hefur vakið heimsathygli. Þar að auki hitti nemendur Jarðhitaskóla og Jafnréttisskóla SÞ og fræddist um starfsemi þeirra.
Mest lesið Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Innlent Fleiri alvarlegri samtöl og oftar haft samband við Neyðarlínuna Innlent Nakinn á rölti og hrækt í hár ökumanns Innlent Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Erlent Rússar gera árásir á orkuinnviði í Úkraínu Erlent Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Innlent Ekkert óvenjulegt við kalt og bjart veður Veður Átta frambjóðendur VG berjast um þrjú sæti á lista í Reykjavík Innlent „Þá kemur bara allt í einu högg“ Innlent Fleiri fréttir Átta frambjóðendur VG berjast um þrjú sæti á lista í Reykjavík Litlar breytingar á fylgi flokkanna Nakinn á rölti og hrækt í hár ökumanns Fleiri alvarlegri samtöl og oftar haft samband við Neyðarlínuna Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu „Þá kemur bara allt í einu högg“ Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Gagnrýnir stjórnvöld um sinnuleysi vegna fæðuöryggis þjóðarinnar Brottvísanir verði beittasta vopnið Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Fækka sýslumönnum í einn Óttaðist um líf sitt þegar árásin stóð sem hæst Loka framleiðslueldhúsi vegna listeríu Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Einum Bifrastarkennaranna sagt upp fyrir ótengdar sakir Vilja ekki óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Boðar aðgerðir gegn brotastarfsemi Samstillt þingnefnd vill taka ESB út úr orðalagi nýrrar stefnu Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Sjá meira