Innlent

Handtóku bílþjófa

Vísir/Hari
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fjögur ungmenni í gærkvöldi, sem tengdust bílþjófnaði í fyrrakvöld. Þeir reyndust allir undir áhrifum fíkniefna og fíkniefni fundust í íbúðinni sem þeir voru í. Þeir sofa nú úr sér í fangageymslum.

Tveir karlmenn voru svo handteknir í kyrrstæðum bíl, báðir undir áhrifum fíkniefna auk þess sem efni fundust í bílnum.

Þegar lögreglubíllinn nálgaðist reyndi ökumaðurinn að sveifla sér í aftursætið og tókst það, en lögreglumenn sáu tilþrifin þannig að þau voru um seinan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×