Vonast til að þetta verði aldrei meira en æfingar Atli Ísleifsson skrifar 5. nóvember 2014 15:53 Alls sóttu 35 manns fyrstu æfingu teymisins. Mynd/Landspítalinn „
Þetta gekk mjög vel. Allir voru áhugasamir og góður andi í hópnum,“ segir Hildur Helgadóttir, hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri ebóluviðbragðsteymisins, en Landspítalinn birti fyrr í dag myndir frá fyrstu æfingu teymisins sem haldin var á Landakoti síðastliðinn föstudag. Hildur segir að æfingin hafi staðið allan daginn og að framundan séu frekari æfingar. „Þetta er þá teymi sem myndi koma til með að sjá um sjúklinginn ef hann kæmi. Þetta er um 35 manna hópur – um tíu læknar, 22 hjúkrunarfræðingar, tveir sjúkraliðar og einn geislafræðingur. Þetta er ekki endanlegt, en þetta er hópurinn sem var boðaður á þessa æfingu.“ Teymið hlýddi á fyrirlestra um morguninn um allt mögulegt. „Um hlífðarbúnaðinn, umgengni og alls konar öryggisatriði. Þeir fengu líka fyrirlestur frá Mögnu Ólafsdóttur sem kom sérstaklega frá Genf til að ræða við okkur. Hún er starfsmaður Rauða krossins og er að þjálfa fólk sem er að fara til starfa til Afríku. Svo voru verklegar æfingar í að klæðast og afklæðast þessum hlífðarbúnaði,“ segir Hildur. Hildur segir að framundan séu svo áframhaldandi æfingar. „Þessa viku eiga allir í teyminu að koma að minnsta kosti einu sinni, helst tvisvar, á Landakot til að klæða sig í hlífðarbúnaðinn og afklæðast svo aftur. Síðan verða fleiri fyrirlestrar. Við þurfum reglulega að koma saman til að klæðast og afklæðast þessum hlífðarbúnaði. Það er það er flóknast í þessu öllu saman.“ Hildur segir að þessu verði áfram haldið, að halda fólki í þjálfun, en vonast að sjálfsögðu til að þetta verði aldrei neitt meira en æfingar. „Við verðum þó að vera við öllu búin.“Landspítalinn birti myndir á Facebook-síðu sinni af æfingu föstudagsins fyrr í dag. Vísir fékk góðfúslegt leyfi til að birta nokkrar myndanna, en Þorkell Þorkelsson á heiðurinn af myndunum.Mynd/LandspítalinnMynd/LandspítalinnMynd/LandspítalinnMynd/LandspítalinnMynd/LandspítalinnMynd/LandspítalinnMynd/Landspítalinn.
Tengdar fréttir Grunur um ebólusmit á Keflavíkurflugvelli Maðurinn reyndist vera að koma frá Suður-Afríku og hefur verið staðfest að hann var ekki með einkenni sem samræmast ebólu. 3. nóvember 2014 14:30 Við ebólusmit hér á landi þyrfti að reisa vegg Landspítalinn er í stakk búinn til þess að taka við ebólu-sjúklingum segir Víðir Reynisson. 4. nóvember 2014 00:01 Farþeginn fluttur á spítala Einstaklingurinn, sem grunur lék á að væri með ebólu og lent var með á Keflavíkurflugvelli í dag, var með krampa og froðufelldi en það eru ekki einkenni ebólu. 3. nóvember 2014 15:10 Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira
Grunur um ebólusmit á Keflavíkurflugvelli Maðurinn reyndist vera að koma frá Suður-Afríku og hefur verið staðfest að hann var ekki með einkenni sem samræmast ebólu. 3. nóvember 2014 14:30
Við ebólusmit hér á landi þyrfti að reisa vegg Landspítalinn er í stakk búinn til þess að taka við ebólu-sjúklingum segir Víðir Reynisson. 4. nóvember 2014 00:01
Farþeginn fluttur á spítala Einstaklingurinn, sem grunur lék á að væri með ebólu og lent var með á Keflavíkurflugvelli í dag, var með krampa og froðufelldi en það eru ekki einkenni ebólu. 3. nóvember 2014 15:10