Innlent

Konungsvegur lagður með handafli hreystimenna

Birta Björnsdóttir skrifar
Við fyrirhugaðar framkvæmdir við Flosagjá og Nikulásargjá á Þingvöllum á dögunum komu í ljós leifar af mannvirki sem á sér rúmlega hundrað ára sögu. Nú þarf að ákveða hvernig varðveita megi hinar nýfundnu minjar sem byggðar voru fyrir ferðalag Danakonungs.

Sumarið 1907 stóð mikið til hér uppi á litla Íslandi. Von var á góðum gesti en Friðrik 8, Danakonungur, hugðist sækja Íslendinga heim.

Talið var víst að hinn tigni gestur vildi sjá allar helstu náttúruperlur í nágrenni Reykjavíkur, svo sem Gullfoss og Geysi og Þingvelli og líklegt þótt að hann myndi vilja ferðast um í vagni. Aðeins einn hængur var þar á, samgönguæðar hér á landi einkenndust nær eingöngu af þröngum reiðstígum. Því var ráðist í byggingu nýs vegar.

„Þeir komu hingað austur haustið 1906 til að undirbúa og voru hér fram að jólum. Svo komu þeir aftur hingað vorið 1907 og þá voru öll verkfærin ferjuð á sleðum hingað austur. Þeir luku svo við veginn rétt áður en konungurinn mætti á svæðið,” segir Einar Sæmundsen, fræðslufulltrúi þjóðgarðsins á Þingvöllum.

„Fyrir tíma vélvæðingar hér á landi var allt unnið með höndum og maður getur alveg klórað sér í hausnum yfir því þegar maður sér þessi björg sem nýtt voru í framkvæmdina hvers kyns heljarmenni þetta hafa verið.”

Þegar allt kom til alls vildi konungur þó fara sjálfur ríðandi eftir konungsveginum svokallaða ásamt um 200 manna fylgdarliði sínu. Hestvagnarnir sem búið var að útvega konunginum með ærnum tilkostnaði komu þó að góðum notum við að ferja ýmsar vistir, sem og kamar fyrir hinn tigna gest.

Nú þarf hinsvegar að ákveða hvað verður gert við leifar Konunsvegarins á þessum fjölfarna stað á Þingvöllum.

„Við vonumst til að þetta verði tilbúið næsta vor og stefnum ótraruð að því. Við hjá þjóðgarðinum á Þingvöllum vinnum með landslagsarkitekt að þessu verkefni auk þess sem minjavörðurinn á Suðurlandi horfir yfir öxlina á okkur, sem er vel. Við viljum gera þetta í góðu samstarfi. Við munum leggja okkur fram um að skila þessu vel,” segir Einar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×