Innlent

Ökumaður undir áhrifum örvandi og deifandi lyfja

Gissur Sigurðsson skrifar
Lögreglan hafði í nógu að snúast í nótt en ýmsir voru á ferli undir áhrifum.
Lögreglan hafði í nógu að snúast í nótt en ýmsir voru á ferli undir áhrifum. visir/vilhelm
Karlmaður undir áhrifum lyfseðilsskyldra lyfja, bæði örvandi og deyfandi, ók á ljósastaur í Breiðholti í gærkvöldi með þeim afleiðingum að staurinn féll og bíllinn stór skemmdist.

Ökumaðurinn meiddist á fótum og var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild Landsspítalans. Starfsmenn Orkuveitunnar voru kallaðir út til að aftengja staurinn.

Ung kona olli svo  umferðaróhappi í miðborginni um miðnætti, en stakk af. Lögreglan stöðvaði hana skömmu síðar og reyndist hún undir áhrifum áfengis og fíkniefna og var auk þess réttindalaus.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×