Kannabisræktun á Klapparstíg: Ekki hægt að sanna brot leigjandans Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. nóvember 2014 13:00 Ræktunin var í fjölbýlishúsi við Klapparstíg norðan við Hverfisgötu.
Karlmaður hefur verið sýknaður af ákæru um kannabisræktun í íbúð á þriðju hæð í fjölbýli við Klapparstíg í Reykjavík. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þessari niðurstöðu á föstudag. Forsaga málsins er sú að eldur kviknaði í íbúðinni laugardagskvöldið 15. júní 2013 í herbergi þar sem plönturnar voru ræktaðar. Íbúi annarrar íbúðar varð var við lykt og reyk frá íbúðinni sem var mannlaus og gerði slökkviliði viðvart. Eldurinn var bundinn við eitt herbergi íbúðarinnar þar sem kannabisræktun fór fram. Gekk greiðlega að slökkva eldinn og lagði lögregla hald á 67 kannabisplöntur, 16 gróðurhúsalampa, 3 síur, 10 straumbreyta og eina viftu. Hæð plantnanna var á bilinu 25 cm til 78 cm. Lögregla hafði um kvöldið samband við eiganda íbúðarinnar sem tjáði henni að íbúðin væri í leigu. Reyndi lögregla endurtekið að ná sambandi við meintan leigjanda sem loks svaraði með SMS-skilaboðum á mánudeginum. Væri hann í slæmu símasambandi en myndi hafa samband þegar hann sneri aftur í bæinn daginn eftir. Eigandi íbúðarinnar og ákærði voru ekki sammála hvort sá síðarnefndi væri leigjandi að íbúðinni eða ekki. Eigandinn vísaði til húsaleigusamnings til eins árs frá 1. apríl 2013. Hefði leigjandinn greitt fyrir fyrsta mánuðinn í reiðufé en síðan hefði leigjandinn ekki staðið í skilum. Ákærði benti hins vegar á að samningnum hefði aldrei verið þinglýst. Hann hefði hætt við að leigja íbúðina þegar sinnaðist hjá mönnunum tveimur skömmu eftir undirritun samningsins. Ákærði sagði þá hafa verið vini lengi en slest hafi upp á vinskapinn. Hann hafi aldrei tekið við lyklum að íbúðinni.67 plöntur voru gerðar upptækar. Myndin er úr safni.Samkvæmt samningi var húsaleigan 191 þúsund krónur. 180 þúsund fyrir leiguafnot og 11 þúsund fyrir rafmagn og hita. Sérstaklega var tekið fram að leigjandi þyrfti að greiða aukalega ef rafmagns- og hitareikningar yrðu hærri. Meðal þeirra sem báru vitni fyrir dómi var kærasta ákærða þar til í maí á þessu ári. Sagði hún ákærða að mestu hafa búið hjá sér á því tímabili sem var til rannsóknar en annars dvalið hjá mömmu sinni. Hún hefði aldrei heyrt að ákærði væri með íbúð til leigu. Sonur hennar staðfesti þetta. Eigandinn sagði að á húsfundi í kjölfar brunans hefði komið fram að einhver íbúi hefði séð til ákærða á göngum hússins fyrir brunann. Sá vitnisburður fékkst ekki staðfestur fyrir dómi. Í niðurstöðu dómsins kemur fram að engin staðfesting liggi fyrir að greidd hafi verið leiga af íbúðinni. Enginn geti staðfest að ákærði hafi tekið við lyklavöldum að íbúðinni. Enginn nágranni geti staðfest að ákærði hafi búið í íbúðinni á þeim tíma sem ræktun fíkniefna fór fram. Því verði ekki komist hjá því að sýkna ákærða. Allur sakarkostnaður greiðist af ríkissjóði. Plönturnar 67 auk ræktunarbúnaðar voru gerð upptæk af lögreglu. Dóminn í heild sinni má sjá hér.
Mest lesið Maðurinn enn í lífshættu og á gjörgæslu Innlent „Trúi varla að Viðreisn sé á móti því að flagga hinsegin fánanum“ Innlent Tengja „kuldapollinn“ við Ísland við veikari AMOC Innlent Aðeins tímaspursmál hvenær kennitölur verði notaðar í stóra árás Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Krabbameinssjúkir gætu sloppið við lyfjameðferð Erlent Fluglistir sýndar yfir Reykjavíkurflugvelli Innlent Nágranni fluttur á HSS eftir bruna í Vogum Innlent Rannsaka áflog við verslunarmiðstöð í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Engir Framsóknarfingur í kökukrúsinni í Kópavogi Nágranni fluttur á HSS eftir bruna í Vogum Skoða veitingu íslensks ríkisborgararéttar Segir magnað að fá að sjá verk Bjarkar á Listahátíð „Trúi varla að Viðreisn sé á móti því að flagga hinsegin fánanum“ Takmarkað aðgengi að P2-bílastæðum vegna malbikunar Tjá sig ekki um málið Aðeins tímaspursmál hvenær kennitölur verði notaðar í stóra árás Ósátt með áform meirihlutans Sigurjón frá Hornafirði í Skaftárhrepp Maðurinn enn í lífshættu og á gjörgæslu Tengja „kuldapollinn“ við Ísland við veikari AMOC Rannsaka áflog við verslunarmiðstöð í Kópavogi Fluglistir sýndar yfir Reykjavíkurflugvelli Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn á Kársnesi Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Sjá meira