„Þú vilt þó líklegast ekki smakka skoska matinn“ Atli Ísleifsson skrifar 9. nóvember 2014 11:53 Pauline McCarthy (til hægri) segir alltaf vera skemmtilegt á Þjóðahátíð Vesturlands. „
Þetta er alltaf skemmtilegt. Það verður boðið upp mat frá mörgum löndum. Það má smakka indverskan mat, taílenskan, skoskan og svo framvegis. Þú vilt þó líklegast ekki smakka skoska matinn. Skalt prófa eitthvað annað,“ segir Pauline McCarthy létt í bragði en hún er einn skipuleggjenda Þjóðahátíðar Vesturlands sem haldin verður í íþróttahúsinu á Vesturgötu á Akranesi í dag. Félag nýrra Íslendinga stendur fyrir hátíðinni, en þetta er sjötta árið í röð sem hátíðin er haldin. Pauline segir fulltrúar fjölda þjóða muni taka þátt í ár og verði með með mat frá sínu landi sem hægt er að bragða á og svo verða skemmtiatriði frá ýmsum löndum.“ Heiðursgestur hátíðarinnar er sendiherra Kanada á Íslandi, Stewart Wheeler, sem mun flytja ávarp á íslensku. Pauline segist ekki hafa tölu á hvað margar þjóðir eigi fulltrúa á hátíðinni en að alls séu borðin fjörutíu. „Það verða búlgarskir söngvarar, Bollywood-dansarar, spænskur Flamenco-dansari, ensk þjóðlagatónlist, afrískir trommarar frá Keníu, íslenskir söngvarar og fleiri og fleiri.“En hyggst þú sjálf troða upp?„Já, ég mun syngja lög á keltnesku,“ segir Pauline sem vakti sjálf athygli í þáttunum Iceland Got Talent síðasta vetur. Hátíðin er haldin í íþróttahúsinu á Vesturgötu á Akranesi og hefst klukkan 14 og stendur til 17. Pauline segir að frítt sé inn á hátíðina og að margir verði með varning til sölu. Hún bendir þó á að ekki verði posar á staðnum og hvetur því fólk til að mæta með reiðufé.
Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira