Hundruð sjúklinga bætast á biðlista vegna verkfalls lækna Heimir Már Pétursson skrifar 30. október 2014 12:30 Þórarinn Gíslason yfirlæknir segir áhyggjuefni að fimm til tíu árgangar lækna sem flúðu land séu ekki á leiðinni heim. Þeir ásamt sjúklingum eigi ekki fulltrúa við samningaborðið. vísir/vilhelm
Ef samningar takast ekki við lækna fyrir 11. desember næst komandi þegar boðuðum aðgerðum lýkur, verður allt að 800 aðgerðum á Landsspítalanum frestað og biðlistar muni lengjast til mikilla muna. Yfirlæknir segir fulltrúa sjúklinga og landflótta lækna ekki sitja við samningaborðið þar sem enginn árangur hefur náðst. Um 160 lyflæknar á Landsspítalanum og allir lyflæknar á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri er í verfalli í dag annan daginn í röð. Aðeins er veitt neyðarþjónusta lyflækna á spítulunum og á Landsspítalanum í Fossvogi eru til að mynda aðeins tveir læknar á vakt. Þórarinn Gíslason lungnasérfræðingur og yfirlæknir er annar þeirra. Hann segir ástandið í heilbrigðiskerfinu ekkert hafa með flokkapólitík að gera. „Þetta er ekki spurning um einhverja pólitík eða einhvern stjórnmálaflokk. Ég er ekki í neinum stjórnmálaflokki nema þessum flokki þess fólks sem er að vinna hér og er stöðugt að berjast við það að fá að sinna vinnunni sinni og þeim sem eru veikir í landinu,“ segir Þórarinn. Í fréttum okkar í gær sagði Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri flæðisviðs Landsspítalans að aðgerðum á biðlista gæti fjölgað um allt að 800 á þeim tíma sem aðgerðir lækna standa, en þeim á að ljúka hinn 11. desember. „Það er reynt að hafa hér eins mikla starfsemi og mögulegt er þrátt fyrir verkfallsaðgerðirnar. Þetta er auðvitað ákveðin nauðvörn en þó þetta líti ekki á blaðinu út fyrir að vera mikið, þá er þetta að hafa mjög mikil áhrif á starfsemina á slæmum tíma,“ segir Þórarinn. Engin niðurstaða varð á stuttum saminganefndarfundi með læknum hjá Ríkissátasemjara í gær og annar fundur hefur ekki verið boðaður fyrr en á mánudag þegar aðgerðir lækna hefjast á ný, en hlé verður á aðgerðum þeirra á morgun og um helgina. Þórarinn segir ómögulegt að geta sér til um hvað þetta ástand muni vara lengi. „Ekki spyrja mig. Hvað sættir fólk sig við að biðlistar séu langir? Kannski er þetta spurning um stærra dæmi? Hvað getur heilbrigðiskerfið á íslandi verið lengi í þeirri stöðu sem það hefur verið að þróast í undanfarið? Það held ég að sé meginástæða þeirra aðgerða sem Læknafélagið grípur til. Ég þekki engan lækni sem er raunverulegan ánægður með að hafa farið í þessar aðgerðir. Ég þekki heldur engan lækni sem greiddi atkvæði á móti þeim,“ segir Þórarinn. Við samningaborðið sitji hvorki fulltrúar sjúklinga né þess fjölda lækna sem eins og aðrir landsmenn færðu fórnir eftir efnahagshrunið og misstu jafnvel íbúðir sínar og flúðu land stórskuldugir. „Og það er það sem við höfum miklar áhyggjur af. Að þessi hópur, um fimm til tíu árgangar íslenskra lækna, er hreint og beint ekkert á leiðinni heim,“ segir Þórarinn Gíslason yfirlæknir.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Erlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Fleiri fréttir Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Sjá meira