Rúmlega helmingur hræðist miðbæinn Stefán Árni Pálsson skrifar 30. október 2014 15:23 visir
Mikill meirihluti íbúa á höfuðborgarsvæðinu telur sig öruggan eina á gangi í sínu hverfi að næturlagi en aftur á móti telur rúmlega helmingur sig vera óörugga í miðborg Reykjavíkur eftir að myrkur er skollið á eða eftir miðnætti um helgar. Þetta kemur fram í skýrslu embætti ríkislögreglustjóra og Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um viðhorf til lögreglu, ótta við afbrot og reynslu af þeim. Líkt og fyrri ár upplifðu hlutfallslega fleiri konur sig óöruggar í miðborginni en karlar. Um er að ræða kannanir sem lögreglan hefur framkvæmt reglulega síðastliðin ár í samstarfi við rannsóknarstofu í afbrotafræði. Könnunin var framkvæmd af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands í maí og júní 2014. Tekið var 4.000 manna tilviljunarúrtak fólks á aldrinum 18 til 76 ára af landinu öllu, 2.000 manns á höfuðborgarsvæðinu og 2.000 manns á landsbyggðinni. Alls svöruðu 2.605 einstaklingar könnuninni, þar af 1.370 á höfuðborgarsvæðinu. Svarhlutfallið var því 65 prósent fyrir landið allt, en 68,5 prósent fyrir höfuðborgarsvæðið. Niðurstöður ríkislögreglustjóra byggja á heildartölunum og eru svör þátttakenda greind eftir landshlutum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greinir gögnin hins vegar sérstaklega eftir hverfum og bæjarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Báðum skýrslunum er skipt eins í kafla. Fyrsti kaflinn fjallar um starf lögreglu, aðgengi og sýnileika og sá næsti um ótta við afbrot og öryggistilfinningu. Síðasti kaflinn er um reynslu af afbrotum og tilkynnt brot. Meðal annars kemur fram að meirihluta þátttakenda fannst lögreglan hafa skilað góðu starfi árið 2013 við að stemma stigu við afbrotum í þeirra byggðarlagi/hverfi og var meirihluti þeirra sem höfðu nýtt sér þjónustu lögreglu ánægðir með hana. Þegar spurt var um hvaða afbroti fólk hafði mestar áhyggjur af að verða fyrir, var innbrot oftast nefnt líkt og í síðustu könnun. Þar á eftir nefndu svarendur ofbeldisbrot og því næst þjófnaði.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira