Skora á Vigdísi að hækka framlag til myndlistarsjóðs Stefán Árni Pálsson skrifar 30. október 2014 15:32 Jóna Hlíf Halldórsdóttir, formaður SÍM, og Vigdís Hauksdóttir. VÍSIR/aðsend/PJETUR
Samband íslenskra myndlistarmanna afhendir Vigdísi Hauksdóttur, formanni fjárlaganefndar, undirskriftalista þar sem er skorað á ríkisstjórn Íslands að hækka framlag til myndlistarsjóðs í Iðnó klukkan fjögur á morgun. Samkvæmt frumvarpi til fjárlaga sem liggur fyrir á Alþingi er lagt til að framlag ríkisins til Myndlistarsjóðs verði 1/3 af upphaflegu framlagi í sjóðinn sem var 45 milljónir árið 2013. Samkvæmt frumvarpinu er lagt til að framlagið verði 15 milljónir árið 2015. SÍM hefur haldið út undirskriftarlista síðasta mánuð, þar sem þessum aðförum að Myndlistarsjóði er harðlega mótmælt eins og kemur fram í tilkynningu frá sambandinu. Yfir 1000 manns hafa skrifað undir og skorað á þingmenn að snúa þessari þróun við og standa vörð um Myndlistarsjóð. „Skapandi greinar hafa ekki valdið rekstrarhalla ríkissjóðs undanfarin ár og þær eiga því ekki að þurfa að þola 67% niðurskurð. Til að Myndlistarsjóður geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu þarf fullt fjármagn - 45 milljónir,“ segir í tilkynningunni. Á fundinum verður Dagur Myndlistar einnig formlega settur.Dagskrá fundarins: 16:00 Ragnar Kjartansson myndlistarmaður heldur erindi. 16:10 Ólöf K. Sigurðardóttir safnstjóri og stjórnarmaður í Myndlistarráði heldur erindi. 16:20 Opnar umræður. 16:40 Ghostigital flytur hljóðgjörninga. 16:50 Elísabet Brynhildardóttir, verkefnastjóri, opnar Dag Myndlistar. 17:00 Jóna Hlíf Halldórsdóttir, formaður SÍM, afhendir Vigdísi Hauksdóttur, formanni fjárlaganefndar, undirskriftalista frá SÍM. Fundarstjóri verður Markús Þór Andrésson, sýningarstjóri.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira