Tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 30. október 2014 18:09 Maðurinn neitaði sök og sagði sambýliskonu sína „lygasjúka“. vísir/getty
Karlmaður var í Hæstarétti í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa ráðist á og nauðgað þáverandi sambýliskonu sinni. Hæstiréttur staðfesti þar með niðurstöðu héraðsdóms en féllst hins vegar ekki á bótakröfu konunnar. Maðurinn var einnig dæmdur fyrir að hrækja á lögreglumenn þegar hann var handtekinn í tengslum við annað mál. Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa laugardaginn 19.maí 2012 veist að konunni, slegið hana með krepptum hnefa í vinstra gagnauga og strax í kjölfarið með flötum lófa hægra megin í andlitið, hrint henni niður stiga og slegið hana í höfuðið. Þá var hann jafnframt sakfelldur fyrir að hafa nauðgað konunni 24.maí sama ár. Er hann sagður hafa rifið gat í klofinu á íþróttabuxum sem hún klæddist og sett fingur inn í leggöng hennar, gegn hennar vilja. Í kjölfarið hafi hann ýtt henni niður stiga og kastað í hana keramik lampa. Við þetta hlaut konan meðal annars sár á hægri kinn og kringum munn, roða hægra megin á hálsi og hálshryggjarliðum. Þá hlaut hún skurð á hægra handarbaki sem sauma þurfti saman með tveimur sporum, eymsli í hægra læri og 0,5 sentímetra langa rispu eða hruflsár við leghálsopið. Maðurinn neitaði sök í málinu og sagði sambýliskonu sína „lygasjúka“. Hún hafi stungið hann með hnífi og að ef einhver hefði orðið fyrir ofbeldi þá hafi það verið hann sjálfur. Hún hafi verið í fráhvörfum vegna fíkniefnaneyslu og að slagsmál sem hún lenti í skýri áverka hennar.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira