Skelfileg tíðindi af Hafró og hættuleg staða Heimir Már Pétursson skrifar 30. október 2014 19:30 Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri LÍÚ. VÍSIR/ARNÞÓR
Framkvæmdastjóri LÍÚ segir skelfileg tíðindi að Hafrannsóknarstofnun hafi ekki fjármuni til að stunda rannsóknir á helstu auðlind þjóðarinnar. Stofnunin gat ekki sent skip sín í árlegt haustrall til að rannsaka verðmætustu fiskistofna og til greina kemur að leggja öðru af rannsóknarskipum hennar. Hafrannsóknarstofnun er ágætlega skipum búinn með Árna Friðriksson og Bjarna Sæmundsson. En Jóhann Sigurjónsson forstjóri stofnunarinnar hefur sagt í fréttum okkar að til greina komi að leggja honum ef fjárhagur hafrannsóknarstofnunar verði ekki tryggður. Jóhann segir að rekstrarfé stofnunarinnar hafi minnkað um 700 milljónir króna frá síðasta ári og ef framlög verði ekki aukin umfram það sem fjárlagafrumvarp næsta árs geri ráð fyrir þurfi væntanlega að leggja Bjarna Sæmundssyni. „Þetta eru skelfileg tíðindi fyrir sjávarútvegsþjóðina Ísland og í rauninni stórhættulegt mál að okkar viti vegna þess að þetta leiðir ekki til annars en þess að þau gögn sem við byggjum allt okkar á hvað varðar veiðar eru ekki nægjanleg. Duga ekki til að veita okkur ráðgjöf. Það kann að leiða til eins að tvennu, að við náum ekki að fullnýta þá stofna sem við höfum aðgang að nú eða það sem verra er, að við ofnýtum þá,“ segir Kolbeinn Árnason framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna. Þá geti þetta ástand haft slæm áhrif á markaðassetningu á íslensku sjávarfangi, þar sem kröfur um sjálfbærni, rekjanleika og þekkingu á ástandi stofna skipti miklu. Í haust voru fiskiskip fengin í togararallið og þeim greitt með aflaheimildum fyrir milligöngu sjávarútvegsráðuneytisins. „Þetta er engin lausn. Við verðum að tryggja það að hafrannsóknum sé sinnt hér á skipulegan hátt. Vandaðan hátt þar sem horft er til framtíðar,“ segir Kolbeinn. Útgerðin sé vissulega til í að hjálpa til við rannsóknir og búi yfir þekkingu og tækjabúnaði til þess. „En það þarf að vera eitthvað stórt plan til. Það þarf að ver eitthvað skipulag og það að bjarga þessu ári frá ári með þessum hætti, sem við teljum í ofanálag að sé óhagkvæmur, er eitthvað sem ekki er ásættanlegt til lengri tíma,“ segir Kolbeinn Árnason.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira