Heiðrún hlaut menningarverðlaun Akraness Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 30. október 2014 20:05 Heiðrún Hámundardóttir.
Heiðrún Hámundardóttir tónmenntakennari hlaut menningarverðlaun Akraneskaupstaðar árið 2014 en verðlaunin voru afhent nú síðdegis við upphaf Vökudaga, árlegrar menningarhátíðar Akraness. Menningarverðlaunin eru á ári hverju veitt einstaklingi eða hópi sem hefur á einhvern hátt skarað fram úr í menningarlífi Akraness, en Heiðrún hefur varið tíma sínum í að vinna með ungu fólki, kveikja áhuga þess og hvetja það áfram á tónlistarbrautinni. Hún kennir í dag tónmennt við þrjá skóla, Tónlistarskólann á Akranesi, Brekkubæjarskóla og Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Þá hefur hún stofnað tónlistarbraut á unglingastigi, skipulagt Ungir-Gamlir þar sem tónlistarnemendur fá að spreyta sig með eldri átrúnaðargoðum sínum í tónlist og æfingum á sviði og haft umsjón með Hátónsbarkakeppni þar sem margir góðir söngvarar hafa stigið sín fyrstu skref. Þannig mætti lengi áfram telja. „Ég er mjög þakklát fyrir þennan heiður, en það sem skiptir auðvitað mestu máli í svona starfi er fólkið sem vinnur með manni. Þá á ég bæði við samstarfsfólk og yfirmenn, en fyrst og fremst krakkana sjálfa en ég vinn mest með þeim,“ segir Heiðrún og bætir því við að mikil gróska sé í tónlistarlífinu á Akranesi. „Tónlistaráhuginn hjá unglingum er gífurlegur. Þau sækja til dæmis í að æfa sig sjálf í tónlistarstofunni eftir skóla og um helgar. Svo það er ljóst að framtíðin er björt.“ Sem fyrr segir voru Heiðrúnu afhent verðlaunin við upphaf menningarhátíðarinnar Vökudagar á Akranesi í dag. Hátíðin stendur í 10 daga en meðal viðburða eru leiksýningar, listsýningar, fjölmargir tónlistarviðburðir, krakkakaffi í Skökkinni nýju kaffihúsi Skagamanna, frumsýning heimildarmyndar og hin árlega þjóðahátíð Vesturlands þar sem verða til að mynda söngvarar frá Búlgaríu, Bollywood dansarar, ensk þjóðlagatónlist og afrískir trommarar. „Heiðrún vinnur einstaklega óeigingjarnt starf. Hún hefur náð árangri með þolinmæði og ástríðu fyrir tónlist. Með þeirri elju kemst hún óvenjulega langt með viðfangsefnið. Árangur hennar er eftirtektarverður og til mikillar fyrirmyndar. Það er sönn ánægja fyrir menningarmálanefnd Akraneskaupstaðar að veita Heiðrúnu Hámundardóttur þessi heiðursverðlaun fyrir litríkt og taktfast starf í þágu menningar á Akranesi,“ segir í tilkynningu frá Akranesbæ. Nánari upplýsingar um Vökudagana er að finna á Facebook síðu þeirra og á www.akranes.is.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira