Nær stanslaus taprekstur hjá Reykjanesbæ Aðalsteinn Kjartansson skrifar 30. október 2014 20:45 Taka þarf til hendinni í rekstri Reykjanesbæjar en skuldir hafa safnast upp á síðustu árum. Vísir / Stefán
Reykjanesbær hefur verið rekinn með halla stanslaust í rúman áratug, með einni undantekningu. Samtals hefur tapið numið fjórtán milljörðum króna á árunum 2002-2013 en á sama tíma hafa skuldir sveitarfélagsins stóraukist. Þetta kemur fram í skýrslu sem KMPG vann fyrir sveitarfélagið og kynnt var íbúum bæjarins í gær. Mestur halli var á rekstrinum á árunum 2008 og 2009 þegar tapreksturinn nam á bilinu 4-4,7 milljörðum króna. Árið eftir, eða 2010, er hinsvegar eina rekstrarár sveitarfélagsins þar sem rekstrarniðurstaðan hefur verið jákvæð en þá skilaði Reykjanesbær 560 milljóna króna afgangi.Hér sést þróun skulda annarsvegar og skulda sem hlutfall af tekjum hinsvegar. Myndin sýnir alvarlega stöðu í rekstri bæjarins.Tölurnar sem miðað er við er rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins fyrir óreglulega liði árin 2002 til 2013, fyrir bæði A- og B-hluta, á verðlagi hvers árs. Í sveitarstjórnarlögum sem tóku gildi árið 2012 er kveðið á um að reka eigi A- og B-hluta samtals með jöfnuði fyrir óreglulega liði. Það þýðir að ef lögin hefðu gilt allt tímabilið hefði vantað fjórtán milljarða til að reksturinn væri í samræmi við lög. Skuldir Reykjanesbæjar námu á síðasta ári rúmum fjörtíu milljörðum króna sem er rúmlega fjórfalt meira en skuldirnar voru árið 2002. Skuldirnar hafa hækkað mikið á tímabilinu en það hafa tekjur sveitarfélagsins einnig gert. Staðan núna er sú að skuldirnar nema 271 prósent af tekjum. Það er betri staða en síðustu árin þar á undan en verri en hún var í upphafi tímabilsins.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Fleiri fréttir „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Sjá meira